Leita í fréttum mbl.is

Fólk í neti og endalok læknisfræðinnar

Hjartalæknirinn Eric Topol við Scripps stofnunina gaf út merkilegan spádóm fyrir 2 árum. Í bók sem kallast Hin skapandi tortíming læknisfræðinnar (Creative destruction of medicine) rekur hann framfarir í erfðafræði, tölvunarfræði og tækni til að skynja ástand fólks og líffæra.

Hann lýsir því hvernig hægt verður að tengja farsíma og tölvur við skynjara innan okkar, t.d. gangráð eða blóðsykursmæli og fá sístreymi upplýsinga beint í lúku einstaklings (eða læknisins). Ný tækni sem nemur hjartslátt, öndun og svefnstellingar barna er einmitt af þessari kynslóð, og gefur stórkostleg tækifæri til að fylgjast með og greina afbrigðileg tilvik eða hættuleg.

Hann lýsir framtíð þar sem læknar og einstaklingar geta fylgst með lykilstærðum, blóðþrýstingi og insúlín styrk, stresshormónum og PSA (prótín sem fylgir blöðruhálskirtilskrabbameini), jafnvel í rauntíma. Og hann leggur áherslu á að ekkert muni stöðva þessar framfarir, tækninni fleygi fram og við verðum að nýta hana til að bæta líf, líðan og horfur.

Topol hefur ekki miklar áhyggjur af misbeitingu tækninnar, mismun í kostnaði eða mögulegum sálfræðilegum eða félagslegum áhrifum. Mér fannst hann skauta yfir þau atriði í bókinni. Sem er dálítið athyglisvert því að orðspor hans reis, þegar hann og samstarfsmenn fundu út aukaverkanir Vioxx, það jók tíðni hjartaáfalla mjög mikið. Topol hafði áður verið í nánu samstarfi við lyfjaiðnaðinn en tók samt slaginn, og gagnrýndi Merck. Merck sló til baka, og kom því til leiðar að Topol var rekinn frá Háskólanum í Michigan. Hann fékk síðar vinnu við Scripps og hefur unnið að mannerfðafræði samfara því að fjalla um tækniframfarir í læknisfræði.

En mér finnst röksemdir hans ekki fyllilega sannfærandi. Hann ræðir t.d. framfarir í erfðafræði og virðist nokkuð viss um að við getum fundið erfðabreytileika sem tengist lyfjaþoli eða aukaverkunum, og nýtt þá til að bæta heilbrigðiskerfið. Það eru sannarlega til dæmi um nokkrar stökkbreytingar sem hafa sterk áhrif á virkni eða aukaverkanir lyfja, en það þýðir ekki að mynstrið verði einfallt og nothæft fyrir lækna og sjúklinga. Sem erfðafræðingur finnst mér hann ansi bjartur á brúninni. Svona dálítið eins og mannerfðafræðingar síðustu tveggja áratuga sem lofuðu öllu fögru, jafnvel þótt að þeir sem skildu lögmál erfðafræðinnar vissu að verkefnið væri miklu flóknara.

En í það heila útskýrir Topol nokkuð vel nýjustu framfarir og suma af þeim möguleikum sem handan árinnar. Ég lærði heilan helling af bókinni, en ég var einnig uggandi yfir nýju veröld Topols.

En meiri upplýsingar eru til hins betra ekki satt?

Ítarefni:

http://creativedestructionofmedicine.com/


mbl.is Tengir ungabarnið við snjallsímann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skýjaborg eða gyllta brautin til framtíðar

Sem efahyggju maður að eðlisfari og atvinnu, þá finnst mér hugmyndin um að leggja vegi með sólarsellum fjarstæðukennd. Það er alveg rétt að vegir eru dýrir og að mannkynið þarf meiri orku. En það er ekki endilega víst að skipta malbiki út fyrir sólarrafhlöður sé lausnin.

Mín fyrstu viðbrögð voru að leita á netinu með Solar roadways og criticism sem lykilorð.  Aaron Saenz skrifaði (árið 2010) að hugmyndin væri snjöll að vissu leyti en byggðist að of miklu leyti á óþróaðri tækni. Og að útfærslan, t.d. hvernig hætti að safna og veita rafmagninu væri órannsökuð. Það er viss kostur að hafa stór orkuver sem framleiða orkuna og veitukerfi sem safnar því saman. En af við þurfum greinótt safnkerfi og greinótt veitukerfi, þá eykst kostnaðurinn. Reyndar er kostnaðurinn við stóru orkuver einnig hár, en dæmið þarf að reikna til enda.

Almennt finnst mér hugmyndin um að sækja fjármagn fyrir tæknilegar framfarir og nýsköpun með hópkaupi alls ekki galinn. En málið er að hún opnar líka gátt fyrir grunlausa loddara, sem eru fyllilega sannfærðir um ágæti sinnar hugmyndar en átta sig ekki á því að hún sé tæknilega óframkvæmanleg eða efnahagslega óburðug.

Þeir sem vilja kíkja betur á málið ættu að lesa pistil Saenz.

http://singularityhub.com/2010/08/08/solar-roadways-crackpot-idea-or-ingenious-concept-video/


mbl.is Hjón virkja vegi til orkuframleiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs

Aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs var kynnt 22. maí síðastliðinn. Í áætluninni er fyrirhuguð nokkur mjög jákvæð skref fyrir nýsköpun og rannsóknir hérlendis. Nokkrir vísindamenn fjalla um þetta í grein Fréttablaðsins í dag. Hluti greinarinnar birtist...

Hvernig myndast sýklalyfjaþol?

Sýklar eru meðhöndlaðir með margskonar lyfjum en stundum verða þeir þolnir. Einnig er talað um lyfjaónæma stofna baktería . Orsökin fyrir tilurð þeirra er sú að sýklalyf eru sterkur valkraftur, sem leiðir til breytinga á stofni sýklanna. Hér er að verki...

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband