Leita í fréttum mbl.is

Vísindi á mannamáli á youtube

 

Jórunn Erla Eyfjörð, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands, fjallaði um rannsóknir á krabbameini og möguleika á að nýta nýja þekkingu til bættrar læknismeðferðar í hádegiserindi í Hátíðasal Háskóla Íslands þriðjudaginn 21. október 2014. Erindið er hluti af nýrri fyrirlestraröð sem Háskóli Íslands hleypir nú af stokkunum og ber heitið Vísindi á mannamáli.

https://www.youtube.com/watch?v=n19yBUB62Vs

Vísindi á mannamáli er ný fyrirlestraröð Háskóla Íslands sem efnt er til að frumkvæði Lífvísindaseturs og Líffræðistofu Háskóla Íslands.

Markmiðið er að varpa ljósi á það hvernig vísindamenn háskólans reyna að afhjúpa leyndardóma náttúrunnar og hvaða þýðingu vísindarannsóknir hafa fyrir daglegt líf fólks, t.d. baráttu við sjúkdóma eða náttúruöflin eða til að auka lífsgæði og takast á við nýjar áskoranir tengdar breytingum í umhverfinu.

Næsta erindi verður 18. nóvember n.k. Verðmæti vísinda – Frá grunnrannsóknum til lækningavara á markaði

Ágústa Guðmundsdóttir, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands, fjallar um tilurð og vöxt líftæknifyrirtækisins Zymetech og tengsl þess við grunnrannsóknir í skólanum í öðru erindi fyrirlestraraðarinnar Vísindi á mannamáli sem Háskóli Íslands stendur fyrir. Erindið verður í Hátíðasal Háskóla Íslands þriðjudaginn 18. nóvember nk. kl. 12.10.

Erindi hennar nefnist Verðmæti vísinda – Frá grunnrannsóknum til lækningavara á markaði.

 


Bloggfærslur 11. nóvember 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband