Leita í fréttum mbl.is

Hvatberalækningar verða að veruleika

Erfðalækningar hafa verið prófaðar í nokkrum tilfellum. Þær fela í sér að gera breytingar á erfðaefni einstaklinga, til að lækna þá af sjúkdómi eða til að fyrirbyggja sjúkdóm.

Þær tilraunir sem gerðar hafa verið, hafa verið til að reyna að lækna sjúkdóm.

Enn hefur ekki verið farið í að breyta erfðasamsetningu fólks, til að fyrirbyggja sjúkdóm.

Það kann að breytast með samþykkt Breska þingsins. Eins og við höfum fjallað um hér (sjá pistla neðst), skaða ákveðnar stökkbreytingar starfsemi hvatbera í frumum. Hvatberar eru orkuverksmiðjur líkamans, og bera í sér stutta litninga sem eru með nokkra tugi gena. Bróðurpartur erfðaefnis okkar er annars geymt í kjarnanum (heildar fjöldi gena í okkur er um 25.000).

Hvatberarnir erfast bara frá mæðrum, og því er hægt að fjarlægja þá með því að flytja kjarna á milli eggfruma.

Bætt við:

Fréttamaður mbl.is (Kjartan) hafði samband og ræddi við okkur um hvatberalækningar.

Sjá

Sjá ítarlegri umfjöllun í öðrum pistlum:

Arnar Pálsson | 1. september 2014 Hvatberalækningar

Arnar Pálsson | 7. ágúst 2014 Þrír foreldar og erfðalækningar

Arnar Pálsson | 28. ágúst 2009 Api með þrjá foreldra

Arnar Pálsson | 26. október 2012 stofnfruma með þrjá foreldra

Arnar Pálsson | 28. júní 2013  Barn með þrjá foreldra

Rúv 7. ágúst 2014. Deilt um þátt „þriðja foreldris“


mbl.is Getur átt þrjá líffræðilega foreldra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 4. febrúar 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband