Leita í fréttum mbl.is

Saga sjúklinga sem innblástur og lexíur

Fyrir um viku lést taugalíffræðingurinn Oliver Sacks.

Þorgerður E. Sigurðardóttir í Víðsjá fjallaði um bækur hans, sjúklinga og líf nýliðin föstudaginn.

Þrátt fyrir að maður hafi lesið nokkrar bækur Ólivers lærði ég heilmikið af þættinum. Reyndar minnst af erfðafræðingnum ;)

Víðsjá - Oliver Sacks

Víðsjá dagsins verður helguð breska taugafræðingnum og rithöfundinum Oliver Sacks sem féll frá 30. ágúst síðastliðinn. Í þættinum verður rætt um æviferil, rannsóknir og vísindamiðlun Sacks en bækur hans um mannsheilann hafa vakið mikla athygli og verið umskrifaðar bæði fyrir kvikmyndir og leikhús. Viðmælendur í þættinum eru Magnús Karl Magnússon læknir og deildarforseti læknadeildar Háskóla Íslands, Gunnþórunn Guðmundsdóttir bókmenntafræðingur og Arnar Pálsson erfðafræðingur. Í þættinum heyrast lestrar Illuga Jökulssonar úr skrifum Sacks sem að hljómuðu í þættinum Frjálsar hendur árið 1988. Tónlistin í þættinum er úr óperunni The man who mistook his wife for a hat eftir Michael Nyman og Vel stillta hljómborðinu eftir Johann Sebastian Bach.

Þorgerður sagði mér reyndar að það væri ótrúlega lítið til í safni útvarpsins um verk Sacks og skrif. Það er ansi merkilegt því hann er tvímælalaust merkur fræðari, og bækur hans hafa fengist í bókabúðum hérlendis um áratugabil. Reyndar er það þannig að bækur hans finnast í vísindahillum allra betri bókabúða erlendis.

Ég mæli eindregið með umfjöllun Víðsjár, en enn frekar með því að þú farir út í bókabúð (eða á bókanetverslun) og náir þér í eintak af bókum hans.

http://www.oliversacks.com/


Bloggfærslur 5. september 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband