Leita í fréttum mbl.is

Um aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs

Aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs var kynnt 22. maí síðastliðinn. Í áætluninni er fyrirhuguð nokkur mjög jákvæð skref fyrir nýsköpun og rannsóknir hérlendis. Nokkrir vísindamenn fjalla um þetta í grein Fréttablaðsins í dag. Hluti greinarinnar birtist hér að neðan:

-------------------------------

Aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs: Horfum jákvætt til framtíðar

22. maí síðastliðinn kynnti forsætisráðherra aðgerðaáætlun ríkistjórnarinnar um hvernig stefnu Vísinda- og tækniráðs yrði framfylgt. Aðgerðaáætlunina má finna á vef forsætisráðuneytisins http://www.forsaetisraduneyti.is/vt/. Í stuttu máli byggir áætlunin á því að efla stórlega framlög í samkeppnissjóði og jafnframt að búa til skattalega hvata sem auðvelda og hvetja fyrirtæki til að setja aukið fé í rannsóknir og nýsköpun.

Samkeppnissjóðir
Stjórnvöld hafa nú sagt að þau muni auka fjárframlög til samkeppnissjóða um 2,8 milljarða á kjörtímabilinu, það er um 800 milljónir fjárlagaárið 2015 og um tvo milljarða fjárlagaárið 2016. Það er þó nefnt að þetta sé gert með fyrirvara um fjárlagaferlið og afgreiðslu Alþingis á fjárlögum. Það er því ljóst að Vísinda- og nýsköpunarsamfélagið mun fylgjast grannt með umfjöllun Alþingis um fjárlagafrumvarpið í haust.

Aukin fjárfesting fyrirtækja
Stjórnvöld stefna á að auka fjárfestingu fyrirtækja í rannsóknum og þróun um 5 milljarða króna. Skapa á umhverfi fyrir fyrirtæki þannig að þau sjái hag í að auka hlut sinn í rannsóknar- og nýsköpunarstarfi. Sérstaklega er hér horft til skattahvata.

Háskólasamfélagið
Styrkja á fjármögnun háskólakerfisins hér á landi svo hún verði að minnsta kosti sambærileg við meðaltal aðildarríkja OECD árið 2016 og Norðurlanda árið 2020. Það er ljóst að hækkun framlags í samkeppnissjóði mun einnig styrkja fjármögnun vísindastarfs innan háskólanna. Mennta- og menningarmálaráðuneytið vinnur jafnframt að því að hækka reikniflokka háskólanna, sem er afar mikilvægt. Einnig er stefnt að auknu samstarfi háskóla og fyrirtækja.

Lokaorð
Undanfarin ár hefur þrengt mjög að vísindasamfélaginu á Íslandi með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á nýsköpun, nýliðun ungra vísindamanna og háskólasamfélagið í heild. Með nýrri stefnu og aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs, undir forystu forsætisráðherra, er mörkuð braut sem ætlað er að snúa þessari óheillaþróun við. Með því að halda fast í aðgerðaáætlunina og sýna í verki að stjórnvöldum sé alvara með stefnu Vísinda- og tækniráðs verður hægt að endurvinna traust milli stjórnvalda og vísindasamfélagsins, öllum til hagsbóta.

Arnfríður Guðmundsdóttir, prófessor
Erna Magnúsdóttir, rannsóknasérfræðingur
Kristján Leósson, vísindamaður
Steinunn J. Kristjánsdóttir, prófessor
Þórarinn Guðjónsson, prófessor
Þórólfur Þórlindsson, prófessor
Þórunn Rafnar, vísindamaður stjórn Vísindafélags Íslendinga


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Já, ég held að maður verði að klappa stjórnvöldum lof í lófa. Á tímabili var maður nú ekki alltof ánægður með framgönguna. Þetta mun án efa skila sér inn í framtíðina. Tek ofan fyrir þessum mönnum.

Jósef Smári Ásmundsson, 7.6.2014 kl. 08:50

2 Smámynd: Arnar Pálsson

Sæll Jósef

Ég er sammála að þetta er sannarlega gott skref.

Sem vígþreyttur framlínumaður, þá bíð ég með standandi klapp þangað til gjörðir fylgja orðum.

Arnar Pálsson, 7.6.2014 kl. 18:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband