Leita í fréttum mbl.is

Fuglaflensuveirur í fuglum á Íslandi

Í kjölfar faraldurs fuglaflensu af stofni H5N1 fyrir nokkrum árum hefur mikil umræða átt sér stað  um flensu í fuglum um allan heim. Helstu áhyggjur manna snúa að þeirri  hættu sem alifuglum stafar af fuglaflensu  og mögulegum áhrifum þess á menn ef banvænar veirur breyta sér og smitast á milli manna.  

Gunnar Þór Hallgrímsson, dósent í dýrafræði við Líf- og  umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands, fjallar um rannsóknir á veirum í farfuglum sem koma hingað til lands í sjötta erindi fyrirlestraraðarinnar Vísindi á mannamáli í Háskóla Íslands. Gunnar Þór hefur stundað rannsóknir sínar undanfarin ár og hafa niðurstöður þeirra vakið athygli víða um heim.

Erindið verður haldið í Hátíðasal Háskóla Íslands  þriðjudaginn 5. maí nk. kl. 12.10.

Í erindinu fjallar Gunnar Þór um rannsóknir sínar og samstarfsfélaga  sem á síðustu árum hafa skoðað tíðni og gerðir fuglaflensuveira í fuglum á  Íslandi.  Í fuglunum fundust margar gerðir veira sem eiga uppruna bæði í Evrópu og Ameríku.
Rannsóknirnar leiddu meðal annars í ljós að Ísland er einskonar suðupottur fyrir fuglaflensu frá mismunandi heimssvæðum þar sem þær blandast og mynda nýjar veirur. Af þessu leiðir að Ísland getur virkað eins og stökkpallur fyrir fuglaflensu á milli Evrasíu og Ameríku. Í rannsóknunum fundust m.a. vægar gerðir af H5N1 (í vaðfugli) og H5N2 (í máfi) fuglaflensuveirum.

Í erindinu verður sagt frá því hvaða fuglategundir eru líklegastar til að flytja fuglaflensuveirur til og frá Íslandi og rýnt í lífshætti og farmynstur fuglanna. Einnig verður rætt um hvaða áhrif flensa hefur á villta fugla og hvaða veirum mönnum kann að stafa ógn af.
Um fyrirlestraröðina Vísindi á mannamáli er fyrirlestraröð Háskóla Íslands sem hófst haustið  2014 að frumkvæði Lífvísindaseturs og Líffræðistofu Háskóla Íslands. Markmiðið er að varpa ljósi á það hvernig vísindamenn háskólans reyna að afhjúpa leyndardóma náttúrunnar og hvaða þýðingu vísindarannsóknir hafa fyrir daglegt líf fólks og atvinnulíf í landinu.

Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Nánari upplýsingar má finna á:
www.hi.is/visindi_a_mannamali 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Er þetta ekki bara sama lögmálið með alifugla og fólk?

=Ef að þú setur of marga einstaklinga á sama fermeterinn; að þá verða bara til einhverjir kvillar vegna vanlíðunnar/ónæðis.

=Lausnin ætti þá frekar að snúa að því að láta fólkinu/dýrunum líða betur frekar að dæla lyfjum í fólkið/dýrin eftir á;

þegar í óefni er komið:

http://www.hringbraut.is/frettir/farid-ad-bera-a-kjotskorti-i-budum-1

http://www.ruv.is/frett/or-mannfjolgun-i-afriku

Jón Þórhallsson, 4.5.2015 kl. 12:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband