Leita í fréttum mbl.is

Jane Goodall í Bíó paradís

Hún var 23 ára menntuð sem ritari, en með einlægan og djúptæðan áhuga á dýrum, þegar hún ferðaðist til afríku árið 1960. Hún fékk tækifæri hjá Louis Leaky og átti eftir að kollvarpa sýn okkar á manninn og skilningi á hegðan ættingja okkar.

Jane Goodall gerði grundvallaruppgötvanir á atferli simpansa. Hún fylgdist með simpanasnum David Graybeard nota grein sem verkfæri til að ná í fæðu. Á þeim tíma var talið að "hinn viti borni" maður væri eina tegundin á jörðinni sem notaði verkfæri. Um uppgötvanir hennar sagði hann:

Now we must redefine ‘tool’, redefine ‘man’, or accept chimpanzees as humans

Kvikmyndin Jane fékk tilnefningu til Bafta verðlauna, og hefur hlotið 17 aðrar tilnefningar til verðlauna á kvikmyndahátíðum um allan heim.

Okkur til láns verður myndin sýnd í Bíó Paradís nú um helgina.

Laugardagur 10. febrúar kl 16:00
Sunnudagur 11. febrúar kl 16:00
Sunnudagur 11. febrúar kl 18:00

Ekki missa af þínum miða hér!
Viðburðurinn á Facebook
Á heimasíðu Bíó Paradís

jane_orphan_closeshot3-688x451.jpgForsaga myndarinnar er sú að ritstjórar National Geographic komust á snoðir um rannsóknir Jane Goodall og fengu að ljósmynda hana í feltinu gegn því að styrkja starfið. Upp úr því spratt einstakur bálkur greina um simpansana og rannsóknir Jane og félaga, hver annarri betri.

Stuttu upp úr 1960 sendi National Geographic ljósmyndarann Hugo van Lawick og kvikmyndatökumenn til að taka myndir af Jane og öpunum. Myndefnið var notað í kvikmynd sem kom út árið 1965. En það lá síðan óhreyft í áratugi uns það kom aftur í leitirnar. Brett Morgen fékk filmurnar í hendurnar og hófst handa við að rannsaka fyrstu ár Jane í Gombe, og var afraksturinn "Jane" frumsýndur í október síðastliðnum.

Bíómyndin Jane fær einróma lof gagnrýnenda og áhorfenda, og þykir bæði hjartnæm og vísindalega fróðleg. Samkvæmt umsögnum er saga Jane sem frumkvöðuls í rannsóknum í forgrunni, en  ástarævintýri Jane og Hugós bættir við tilfinningalegri vídd (sem við ástríðufullu aparnir þrífumst á).

Jane Goodall uppgötvaði snemma að simpansanir og náttúran þarfnast verndar okkar. Gengdarlaus ofnýting auðlinda jarðar eyðir búsvæðum og útrýmir dýrum og plöntum. Þess vegna stofnaði hún Jane Goodall institute og ferðast um heiminn til að brýna fyrir (sérstaklega ungu) fólki að vernda náttúruna og minnka áhrif okkar á villtar tegundir og búsvæði.

Við íslendingar vorum svo heppin að Jane heimsótti okkur í fyrra og hélt stórkostlegt erindi í Háskólabíói. Nú er unnið að því að tryggja sýningarrétt á bíómyndinni um Jane í kvikmyndahúsum hérlendis, okkur til ununar, fróðleiks og hvatningar.

Stiklur, umsagnir og fleira

Jane - kvikmyndin.

Stikla af Jane.

NY Times review: ‘Jane’ Is an Absorbing Trip Into the Wild With Jane Goodall

Hrefna Sigurjónsdóttir og Margrét Björk Sigurðardóttir. „Hver er Jane Goodall og hvert er hennar framlag til vísinda og fræða?Vísindavefurinn, 3. janúar 2011. Sótt 9. desember 2015. http://visindavefur.is/svar.php?id=58124.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband