29.1.2010 | 09:47
Til hamingju - vísindavefurinn 10 ára
Fyrir 10 árum var settur á laggirnar vefur þar sem hver sem er gat spurt hvaða spurningar sem er um vísindi.
Fjallað er um vísindavefinn, og rætt við aðstoðarritstjórann Jón Gunnar Þorsteinsson í Fréttablaði dagsins (29. janúar 2010) undir fyrirsögninn Hver stal kökunni úr krúsinni?
Af þessu tilefni verður málþing um vísindamiðlun í dag, í Þjóðmenningarhúsinu milli 14 og 16.
Vísindavefurinn hefur þroskast og dafnað síðan þá, og nú er hann orðin hin ágætasta heimild á mismunandi fræðasviðum. Auðvitað er hann ekki gallalaus, og það fer eftir svarendum hverjar áherslurnar eru í hverju tilfelli, en ég hef ekki orðið var við neinar virkilega alvarlegar skyssur í þeim pistlum um líffræði sem ég hef lesið (þær eru örugglega til staðar, allir gera einhvern tíman mistök).
Þar sem ég er líffræðingur fyrirgefst mér vonandi sú sérviska að tína eingöngu til svör líffræðilegs eðlis sem dæmi um svör á vísindavefnum.
Hvaða fiskur er mest veiddur í heiminum?Hvers vegna eru pöndur í útrýmingarhættu?
Hvað getið þið sagt mér um arfgeng heilablóðföll?
Af hverju er DNA-sameindin gormlaga?
Hvaðan er íslenski hesturinn upprunninn?
Höfum við beina línu forfeðra frá öpum til nútímamanns eða vantar enn "týnda hlekkinn"?
Leiðrétting: Málþingið var í Þjóðminjasafninu, ekki Þjóðmenningarhúsinu og ekki Þjóðarbókhlöðunni. Komst að því þegar ég mætti í hlöðuna. Vonandi afvegaleiddi ég ekki einhverja fleiri. Takk Eyja fyrir leiðréttinguna.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt 31.1.2010 kl. 14:26 | Facebook
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó
Athugasemdir
Já, til hamingju með árin tíu Vísindavefur! Mér finnst skrítið að hugsa til þess að ég hef svarað spurningum frá þeim í tíu ár, sérstaklega þar sem ég verð ekki nema 26 ára á þessu ári. Ég fékk að vinna þarna í hálft ár eða þar til ég hóf nám í háskóla og fannst það frábært.
Svo er líka gaman að segja frá því að Stjörnufræðivefurinn er að einhverju leyti afsprengi Vísindavefsins. Fyrstu árin var vefurinn hýstur hjá Vísindavefnum þangað til við fluttum okkur yfir til Stjörnuskoðunarfélagsins.
Ég mæti á málþingið á eftir og vonast til að sjá þig þar líka!
- Sævar
Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is), 29.1.2010 kl. 12:51
Málþingið var í Þjóðminjasafninu. Það eru greinilega of mörg hús sem byrja á Þjóð-.
Eyja (IP-tala skráð) 29.1.2010 kl. 17:01
Takk Eyja fyrir ábendinguna, mér líður eins og fávita (oftast og flesta daga:)
Vísindavefurinn ætlar að halda upp á afmælið með fyrirlestraröð.
Sá fyrst verður 6. febrúar og fjallar um loftslagsmál. Halldór Björnsson, sérfræðingur á Veðurstofu Íslands, mun flytja erindið Hitnar í kolunum, kl 13:00 í Öskju, HÍ.
http://www.visindavefur.hi.is/article.php?id=87
Arnar Pálsson, 3.2.2010 kl. 15:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.