Leita í fréttum mbl.is

Tungutal í Apatar

Þessir atferlisfræðingar eru náttúrulega bilaðir, að setja fínar upptökuvélar í hendurnar á simpönsum og leyfa þeim að leika sér með þær í fleiri mánuði. Engu yrði áorkað við að setja páfagauka við stjórnborð kjarnorkuvers eða þráðorma á alþingi Íslendinga (..og þó!).

Myndskeiðin sem aparnir tóku eru frekar brotkennd, en samkvæmt vefsíðu BBC virtust þeir fatta hvernig myndavélin virkaði, skoðuðu myndskeið af öðrum öpum og starfsfólkinu að undirbúa málsverði fyrir þá o.s.frv.

Simpansar eru vissulega skynugar skepnur, kunna að nota verkfæri, lifa í hópum og sýna flókið félagsatferli. Þeir eru svo sannarlega ekki einstakir meðal apa. Nærskyldir ættingjar þeirra Homo sapiens hafa mikla samskiptagetu og mynda stór og flókin samfélög. Tungumál þeirra eru mjög fjölbreytt og samfélög einkennast af mikilli sköpunargleði (þeir búa t.d. til kvikmyndir um 3 metra háar bláar verur og framandi vistkerfi).

Aðrir apar hafa einnig sín eigin tungumál, eins og rannsóknir nokkurra vistfræðinga hafa sýnt. Klaus Zuberbühler byrjaði að rannsaka apa (Diana monkeys - veit ekki um íslenskt heiti) um 1990 og skildi ekkert í skvaldri þeirra.

main-image-red-putty.jpgNú hefur hann og aðrir ágætis skilning á orðaforða þessara apa og annara. Orðaforðinn litast vissulega af veruleika dýranna, hjá rauðrófu guenonapa* pyow varar við hlébarða og hack varar við skallaerni.

Það sem er kannski stórkostlegast er að þeir geta skeytt saman orðum pyow pyow pyow...hack hack hack þýðir "flýtum okkur héðan burt".

Mismunandi samsetningar af hack og pyow hafa síðan ólíka merking. Hlýða má á tóndæmi á vef the Independent.

Heyrumst...

*Þýðing skv. Kenja dýralífið - putty-nosed monkeys - mynd af vef Cameroon wildlife aid fund.

Ítarefni:

The independent 2008 Steve Connor 'Pyow-pyow': how the putty-nosed monkey tells its friends there's a leopard coming

var articleheadline = "'Pyow-pyow': how the putty-nosed monkey tells its friends there's a leopard coming"

National Geographic 2006 Nicholas Bakalar Monkeys Use "Sentences," Study Suggests

The New York Times 2010 Nicholas Wade Deciphering the Chatter of Monkeys and Chimps


mbl.is Fyrsta kvikmyndin gerð af öpum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hér er athyglisverður þáttur (6 myndbrot) um vitund frá BBC.  Að mér skilst þá eru Simpansar og Órangútar, sem deila þeim eiginleika með okkur að hafa sjálfsvitund. Þ.e. skynja eigin hugsanir og hugsa um eigin hugsanir um að ugsa um hugsanir etc. Drastískur munur á allri skynjun og skilningi. Drastískur munur á heilastarfsemi. Í þessu felst galdurinn, er það ekki?

Jón Steinar Ragnarsson, 27.1.2010 kl. 11:37

2 Smámynd: Arnar Pálsson

Takk Jón Steinar fyrir að benda á þennan dásamlega þátt.

Arnar Pálsson, 28.1.2010 kl. 10:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband