Leita í fréttum mbl.is

Með fróðleik í fararnesti - Kræklingaferð í Hvalfjörð

Af vef Háskóla Íslands. Ferð farin 21. apríl 2012.

---------------------------------------------------------------------------------------

Gísli Már Gíslason, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild, og Halldór Pálmar Halldórsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Suðurnesjum, leiða ferð á slóðir kræklingsins í Hvalfirði. Kræklingi verður safnað og fræðst um hann og verkun hans.

Lagt verður af stað frá Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, kl. 10.30. Hægt verður að sameinast þar í bíla. Gert er ráð fyrir að ferðin taki um það bil þrjár klukkustundir að akstrinum í Hvalfjörð meðtöldum.

Háskóli Íslands og Ferðafélag Íslands halda áfram samstarfi sínu um gönguferðir sem efnt var til í tilefni aldarafmælis skólans 2011. Reynsla og þekking fararstjóra Ferðafélagsins og þekking kennara og vísindamanna Háskólans blandast saman í áhugaverðum gönguferðum og nú hjólaferðum um höfuðborgarsvæðið og næsta nágrenni þess. Ferðirnar verða fimm talsins og tekur hver um tvær klukkustundir. Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir.

Markmiðið með samstarfinu er að vekja áhuga almennings á fræðslu og hollri útivist og fjölga valkostum í þeim efnum. Um leið er vakin athygli og vonandi áhugi á fjölbreyttri starfsemi Háskólans og Ferðafélagsins.

------------------------------------------

Næstu ferðir:

5. maí kl. 11 - Karl Benediktsson, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands, leiðir hjólaferð um miðborgina og nágrenni. Staldrað verður við á nokkrum stöðum og fjallað um ýmis atriði borgarumhverfisins með augum landfræðinga.

27. maí kl. 14 - Hrefna Sigurjónsdóttir, prófessor við Kennaradeild Háskóla Íslands, og Sigurður Snorrason, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild, leiða gönguferð við Vífilsstaðavatn. Ferðin er sérstaklega sniðin að börnum, ungmennum og fjölskyldum þar sem skoðaður verður gróður, lífríki vatnsins og fuglar sem verða á vegi okkar.

8. september kl. 11 - Kristín Einarsdóttir, aðjunkt í þjóðfræði við Félags- og mannvísindadeild, leiðir hjólaferð, með aðstoð Þjóðbrókar, félags þjóðfræðinema, þar sem þjóðsögur, draugasögur, hjátrú sjómanna, vikivaki og óvæntar uppákomur verða á vegi okkar.

6. október kl. 11 - Helga Gottfreðsdóttir, dósent við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands, leiðir gönguferð um slóðir 250 ára sögu ljósmæðra. Gengið verður frá Skólavörðustíg 11 og komið við á þremur til fjórum áfangastöðum í miðbæ Reykjavíkur sem tengjast sögu ljósmæðra.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Pétursdóttir

Ég sé hvergi hvaða dag á að fara í kræklingaferðina.

Hólmfríður Pétursdóttir, 20.4.2012 kl. 16:59

2 Smámynd: Arnar Pálsson

Þetta er vandræðalegt Hólmfríður

Ferðin var á laugardaginn nýliðinn, 21. apríl.

Arnar Pálsson, 23.4.2012 kl. 11:47

3 Smámynd: Hólmfríður Pétursdóttir

Mér fannst góður kræklingurinn á Hálsi, sem var settur beint á hellur AGA eldavélarinnar og borðaður í skelinni, Ekkert vesen með soðið í þá daga.

Hólmfríður Pétursdóttir, 27.4.2012 kl. 00:06

4 Smámynd: Arnar Pálsson

Man einmitt eftir því sem pjakkur. Afi tók slatta í skjatta og sauð hann í skelinni. En hann sauð líka gömlu hænurnar, maður var undarlega afhuga fiðruðu kjeti.

Arnar Pálsson, 27.4.2012 kl. 17:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband