Leita í fréttum mbl.is

Raunvísindaþing 2008

 

Natthus-greenlogoÁ föstudag og laugardag mun Raunvísindadeild Háskóla Íslands standa fyrir þingi. Kynntar verða niðurstöður rannsókna á sviði t.d. jarðfræði, liffræði, efnafræði og stærfræði. Ráðstefnan er öllum opin og fer fram í Öskju, náttúruvísinda húsi Háskóla Íslands (við hliðina á Norræna Húsinu). Dagskrá má finna á vefsíðunni www.raunvis.hi.is/~thing/ en mér finnst vert að leggja áherslu á nokkur yfirlitserindi. Páll Hersteinsson fjallar um Tófuna og sveiflur í veðurfari (13:00 föstudaginn 14), Guðrún Gísladóttir kynnir kolefnisbúskap í jarðvegi á sögulegum tíma á Reykjanesskaga (laugardaginn kl 10:30) og Helgi Björnsson ræðir stöðu jöklarannsókna á Íslandi við upphaf 21. aldar (13:00 laugardaginn 15). Vissulega eru fleiri erindi athygliverð, sérstaklega styttri erindi um rannsóknir á flugum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Kolbeinsdóttir

Æi nei..... verst að ég á ekki heimangengt, viss um að flugu-fyrirlesturinn verður alveg meiriháttar.....      Þú kannski græjar glósur fyrir okkur sem ekki komumst og setur hér á bloggið??

Kolbrún Kolbeinsdóttir, 12.3.2008 kl. 01:37

2 Smámynd: Arnar Pálsson

Hef reyndar ekki gert mínar eigin rannsóknir að umtalsefni hér. Vera má að hægri sannfæri vinstri og bót verði ráðin á. Á meðan læt ég duga tengil á síðu PNAS, þar sem grein um efni fyrirlestursins birtist.

Við erum að rýna í áhrif arfgerðar og mæðra á stærð eggja egg og fyrstu skref þroskunar í ávaxtaflugum.

Arnar Pálsson, 12.3.2008 kl. 14:56

3 Smámynd: Kolbrún Kolbeinsdóttir

Veistu Máni, ég held ég hafi alveg feilað sem líffræðingur.  Mig hefur lengi grunað þetta og eftir að hafa kíkt á þessa síðu sem þú sendir er allur vafi á burt.  Mér finnst það nú hálf sorglegt, sérstaklega verð ég sorgmædd í hvert skipti sem að rukkun kemur frá LÍN. 

Kolbrún Kolbeinsdóttir, 13.3.2008 kl. 01:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband