Leita í fréttum mbl.is

Fjölbreytileiki persónugerða

Heimsmynd gríska heimspekingsins Plató var sú allir menn væru tilbrigði við sama guðlega stefið. Munurinn á milli einstaklinga væri ekki raunverulegur, heldur væri munurinn suð eða hismi sem hyldi hina guðlegu mynd sem byggi í öllum. Þessi heimspeki einblínir á týpur, en álítur fjölbreytileikan óraunverulegann.

Charles R. Darwin og Alfred R. Wallace kollvörpuðu þessari sýn þegar þeir áttuðu sig á því að fjölbreytileikinn er raunverulegur. Munur á milli einstaklinga skiptir máli, fyrir þá í lífsbaráttunni og fyrir þróun tegundarinnar sem þeir tilheyra.

Þetta á einnig við um persónugerðir mannfólks. Við vitum öll að persónuleikar fólks eru mismunandi (A og B gerðir er algeng einföldun), andlegir hæfileikar ólíkir (minni, þrívíddarskynjun, o.s.frv.) og félagslegir þættir einnig (félagsþörf, lyndi, forvitni, skopskyn og þar fram eftir götunum). Persónuleikinn er ofinn úr mörgun þáttum. Fyrir tiltekna þætti má finna einstaklinga á sitthvorum enda skalans, t.d. eru sumir ákaflega léttlyndir á meðan aðrir eru daprir flestum stundum; sumir hafa límheila, muna ótrúlegustu staðreyndi og atburði, á meðan aðrir muna tæplega nafn sitt í upphafi dags. Ýktustu tilfellin vekja sannarlega forvitni okkar og stundum samúð, eins og fólkið sem Oliver Sacks fjallar um í bókum sínum. En aðalspurningin sem fagmenn á þessu sviði takast á við er hvenær á að skilgreina tilfelli sem sjúkdóm eða sérstakan persónuleika?

Robert Saplosky fjallaði um hið samfellda róf persónugerða í Trouble with Testosterone. Einhver sem væri e.t.v. greindur af lækni með geðhvarfasýki í dag, hefði ekki fengið greiningu fyrir 100 árum og gæti hafa verið galdralæknir fyrir 5000 árum. Robert leggur einnig áherslu á mikilvægi samspils umhverfis og erfða/líffræði. 

Animal behavior--from obsessive-compulsive disorder to sexual orientation--is not dictated solely by our genes or by our upbringing. "No biology. No environment," he writes. "Just the interaction between the two."

Robert Whitaker, bandarískur blaðamaður sem hefur rannsakað aukningu á örorku vegna geðsjúkdóma í Bandaríkjunum, leggur líka áherslu á fjölbreytileika persónugerða í nýlegu viðtali við Fréttablaðið (birtist 5. mars 2011). Whitaker gaf út bókina Mad in America árið 2002 og Anatomy of an epidemic í fyrra, og var boðið að halda fyrirlestur hérlendis af Hugarafli. Úr grein Fréttablaðsins - vitnað í R. Whitaker.

Hann segir nítjándu aldar skáld lýsa fallega þeim fjölbreyttu tilfinningum og hegðun sem mannfólkið sýnir. "Fólkið var ekki brjálað eða klikkað það bara hegðaði sér ekki allt eins. Og sá sem var ekki eins, fékk ekki endilega lyf heldur fékk að vera eins og hann var. Ég held að við þurfum að sýna mannlegu eðli aðeins meiri þolinmæði."

Kjarninn í málflutningi Whitakers er að þrátt fyrir aukningu í meðhöndlun á geðsjúkdómum með sérhæfðum geðlyfjum hefur örorka þeirra vegna aukist á undanförnum áratugum í Bandaríkjunum. Vísindalegar framfarir verða þegar einhver greinir mótsögn og leitar skýringa. Hér er sannarlega um mótsögn að ræða, sem er ekki hægt að útskýra bara með betri greiningu á sjúkdómum. Vitanlega er möguleiki að í fortíðinni hafi fólk með alvarlega geðraskanir ekki fengið stuðning eða greiningu, og þurft að tjónka við sín veikindi í einsemd. En það er einnig möguleiki að læknasamfélagið hafi ofgreint eðlileg frávik í persónugerð eða depurð og ýtt fólki og jafnvel börnum út í lyfjameðferðir sem geri ógagn frekar en gagn. Úr grein Fréttablaðsins.

Whitaker hefur miklar áhyggjur af bandarískum börnum en sá hópur barna þar í landi sem notar geðlyf fer sístækkandi. "Í Bandaríkjunum var farið að gefa börnum rítalín og geðlyf rétt eftir miðjan 9. áratug síðustu aldar. Þá voru 16.000 börn öryrkjar vegna geðsjúkdóma. Í dag er þessi tala komin upp í 600.000. Og það sem verra er, mörg af þessum börnum nota geðlyf allt sitt líf og halda áfram að vera öryrkjar," segir Whitaker og telur að þarna sé verið að búa til vítahring.

"Sú þróun sem á sér stað hjá ykkur á Íslandi gefur til kynna að þið gætuð verið á sömu leið og við í Bandaríkjunum. Þar er mikilvægast fyrir ykkur að rannsaka og skoða hvort börnum með geðraskanir sé að fara fram og ná bata með þessari lyfjanotkun. Erum við að hjálpa þeim eða erum við að skapa frekari vandamál fyrir þau í framtíðinni?"

Steindór J. Erlingsson hefur skrifað um þetta efni í blöð hérlendis og meðal annars um ADHD. Í greininni  Er ADHD ofgreint?) er meðal annars fjallað um nýlega íslenska rannsókn:

Í grein eftir Helgu Zoëga, Matthías Halldórsson fyrrverandi aðstoðarlandlækni og fleiri, sem birtist á síðasta ári í Journal of Child and Adolescent Psychopharmacology, koma fram sláandi upplýsingar um geðlyfjaneyslu barna og unglinga hér á landi....

Í ljósi mögulegra neikvæðra afleiðinga af langvarandi neyslu ADHD lyfja er mikilvægt að einungis þeir sem þurfa nauðsynlega á meðferðinni að halda fái hana. Það hlýtur því að vera talsvert áhyggjuefni þegar einn af höfundum skilgreiningarinnar á ADHD, bandaríski geðlæknirinn Allen Frances, viðurkenndi ítrekað fyrr á þessu ári í bandarískum fjölmiðlum að hún hafi stuðlað að „fölskum faraldri“. Frances segir ADHD-netið hafa of þrönga möskva. Það hafi „fangað marga ‚sjúklinga‘ sem hefði líklega vegnað mun betur utan geðheilbrigðiskerfisins“. Ástæða þess að Frances getur haldið þessu fram er að við greiningu á ADHD, eða öðrum geðröskunum, er stuðst við huglæga spurningalista en ekki hlutlæg líffræðileg próf.  ...

Í september hefti Journal of Health Economics birtust tvær óháðar rannsóknir sem varpa skýru ljósi á þessa hættu. Í báðum rannsóknunum var kannað hvort aldur innan árgangs hefði áhrif á hvort börn eru greind með ADHD. Þegar horft er á einstaklinga sem eru að hefja skólagöngu sína þá eru yngstu börnin innan árgangsins, skv. annarri rannsókninni, 60% líklegri til þess að fá ADHD greiningu en þau sem eldri eru. Þegar þessir einstaklingar eru komnir upp í 6. og 8. bekk er tvisvar sinnum líklegra að þeir séu á ADHD lyfjum en þeir sem eldri eru innan árgangsins. Höfundar beggja rannsóknanna telja þetta skýra vísbendingu um að „ADHD einkennin“ endurspegli einungis tilfinninga- og vitsmunalegan vanþroska yngstu nemendanna.  Niðurstaða beggja rannsóknanna er því sú að u.þ.b. 20% þeirra barna og ungmenna í Bandaríkjunum sem fá ADHD greiningu séu ranglega greind.   

Ég tel það vera grafalvarlegt mál ef við erum að ofgreina geðsjúkdóma hjá börnum og í kjölfarið dæla í þau lyfjum sem vitað er að hafa mörg hver alvarlegar aukaverkanir. Krafan hlýtur að vera sú að strangari reglur séu settar um lyfjapróf, skorður séu settar á geðlyfjaávísanir, sérstaklega til barna, og að meiri rannsóknir fari fram á notagildi félagslegrar meðferðar í meðhöndlun á alvarlegum geðröskunum. Einnig finnst mér mikilvægt að dáðst að því hversu fjölbreytilegar persónugerðir fólks er. Tilvist Bangsímons í skóginum hefði örugglega verið fátækari ef Eyrnaslappa hefði ekki notið við.

ítarefni:

Greinar Steindórs J. Erlingssonar um geðröskun.

Vefsíða Robert Whitaker

Fyrirlestur Robert Whiataker á Íslandi 19 febrúar 2011. http://www.ustream.tv/recorded/12796315


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Pétursdóttir

Eyrnaslappi gegnir mikilvægu hlutverki í Þúsundekruskógi.

Þessi færsla þín er þörf og góð eins og þín er von og vísa.

Nútíminn er óþolinmóður og eigingjarn, þegar kemur að þeim sem skera sig úr og þarfnast meiri tíma en ,,hægt" er að veita þeim bæði í uppvexti og atvinnulífi.

Hólmfríður Pétursdóttir, 7.3.2011 kl. 18:04

2 Smámynd: Vendetta

Ég er alveg sammála ykkur. Yfirgangur íslenzkra yfirvalda hvað varðar börn sem ekki eru steypt í ákveðið mót er svartur blettur á íslenzku þjóðfélagi.

Vendetta, 7.3.2011 kl. 19:11

3 Smámynd: Vendetta

Arnar þegar þú skrifar "... og gæti hafa verið galdralæknir fyrir 5000 árum", áttu þá ekki við fyrir 500 árum?

Vendetta, 7.3.2011 kl. 19:13

4 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Charles R. Darwin og Alfred R. Wallace kollvörpuðu þessari sýn þegar þeir áttuðu sig á því að fjölbreytileikinn er raunverulegur.

Fjölbreytileiki mannsins, jafnvel þótt tíndur séu til einhver munur á genum hans, er  það lítill að hugmynd Platós um grundvallarlega einingu mannkynsins stenst fullkomalega. Maðurinn er ein tegund þótt tilbrigði innan hennar megi finna víða eins og gengur og gerist, en það er "hismið" sem Plató talar um.

Svanur Gísli Þorkelsson, 8.3.2011 kl. 09:45

5 Smámynd: Arnar Pálsson

Takk Hólmfríður

Ég mundi ekki nafnið á Þúsundekruskógi. Það er líklega borðlagt að þar ganga hlutirnir hægar fyrir sig fyrir sig en í nútímanum.

Vendetta

Ég veit ekki alveg hversu langt er síðan galdralæknarnir komu fram á sjónarsviðið, en skellti 5000 árum á þá af rælni. Vonandi eru engir þeirra eftir lifandi til að bannfæra mig ef talan reynist röng.

Svanur

Fjölbreytileiki mannsins er það lítill að hugmynd Ernst Mayr um líffræðilega tegundahugtakið stenst fullkomlega. Það er: hópur lífvera sem er fær um að æxlast innbyrðis og eignast frjó afkvæmi, er tegund.

Hugmyndir Platós og Mayr (og annara þróunarfræðinga) eru ákaflega ólíkar. Plató sagði að breytileiki milli manna væri óraunverulegur, og að grunngerðin (tegundin) væri raunveruleg. Darwin, Wallace, Mayr o.fl. sögðu að breytileiki manna á milli væri raunverulegur. Mayr o.fl sögðu síðan, til viðbótar, að tegundir væri einnig raunverulegar.

Arnar Pálsson, 8.3.2011 kl. 09:54

6 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Eitthvað hefur þetta skolast til hjá þér Arnar.

Fyrst segir þú að hugmyndir Platós og Mayr séu ákaflega ólíkar.

Svo að Plató segi að tegundin sé raunveruleg og Mayr og fl. segi að tegundin sé raunraunveruleg.

Samkvæmt þessu  halda báðir fram því sama.

Svanur Gísli Þorkelsson, 8.3.2011 kl. 10:41

7 Smámynd: Arnar Pálsson

Afsakaðu Svanur ef svarið mitt reyndist ruglingslegt.

Við erum að ræða tvennt, A) tegundir og B) breytileika á milli einstaklinga.

A) Plató og þróunarfræðingarnir (flestir) eru sammála um að tegundir séu raunveruleg fyrirbæri.

B) Þeir eru ósammála um breytileikann á milli einstaklinga.

Plató sagði að breytleiki á milli manna væri óraunverulegur.

Darwin, Wallace og við hinir segjum að hann sé raunverulegur.

Arnar Pálsson, 8.3.2011 kl. 11:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband