Leita í fréttum mbl.is

Dalur dauðans þakinn blómum

Dauðadalur í Kaliforníu er einn undarlegasti og hættulegasti staður á jarðríki. Hitinn og þurkurinn getur orðið ofboðslegur, og þar hafa margir borið beinin. Reyndar þekkti ég náunga sem gerði sér að leik að fara í helgarlabbitúra um dalinn, en hann hafði plantað vatnsflöskum (2 x gallon) með vissu millibili á gönguleiðinni. Þannig var hann "viss" um að skrælna ekki á göngunni. Hann sagði það einstaka upplifun að ganga um dalinn, og ekki síður að sofa í kjarrinu og heyra snuðrið í sléttuúlfunum í nánd.

Eyðimerkur eins og Dauðadalur eru ekki þekktar fyrir gróðurfar, en samt býr í jarðveginum fjársjóður fræja, sem bíður þolinmóður eftir tækifæri. Tækifærið er regn. Fyrir skemmstu rigndi hressilega í dalnum og í kjölfarið hófst mikill blómi.

23tri-deathvalleyyellow-master1050Fjallað er um þetta á vef New York Times, og hafa netverjar einnig deilt myndum á Twitter með myllumerkinu #superbloom.

Myndin er af vef NY Times (með beinni slóð).

Death Valley Is Experiencing a Colorful ‘Superbloom’


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Dauðadalur er einn af þeim þjóðgörðum sem maður verður að kippa inn í ferðina, ef maður er á annað borð að þræða þjóðgarðana í suðvesturríkjum BNA í ríkjunum Kalifoníu, Nevada, Arizona, New Mexico, Utah, Colorado, Wyoming, Montana og Idaho eins og við Helga mín gerðum í þremur ferðum um þetta svæði á árunum 1968, 1999, 2002 og 2008.

Fórum reyndar líka í þjóðgarða í Alberta í Kanada.

Ferðirnar um tugi þjóðgarða í þessum hluta Bandaríkjanna opnuðu augu mín fyrir gildi íslenskrar náttúru á þann hátt, að ég kom í hálfgerðu losti til baka til Íslands yfir því hvað framundan var í meðferð okkar á íslenskri náttúru.  

Ómar Ragnarsson, 24.2.2016 kl. 01:00

2 Smámynd: Arnar Pálsson

Sæll Ómar

Þú ert lánsamur maður að hafa stigið í dauðadalinn, hann kunn vera einstök upplifun.

Það er rétt að Bandaríkjamenn voru frumkvöðlar í verndun náttúrunar, líklega vegna þess að þeir sáu hraðar breytingar á landinu og nýtingu þess í kjölfar landnáms hvíta mannsins. Því miður hefur sama vakning ekki náð til allra landa okkar.

Arnar Pálsson, 26.2.2016 kl. 16:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband