Leita í fréttum mbl.is

Ljómandi verðlaun

Sem líffræðingi finnst mér gaman að sjá nóbelsverðlaun í efnafræði vera veitta fyrir GFP*. Græna flúorljómandi prótín var einangrað úr marglyttu en síðan var sýnt fram á að það ljómar ef orkuríkum geislum er varpað á það. Þessi eiginleiki hefur verið nýttur í rannsóknum í líffræði og læknisfræði, til að skoða staðsetningu prótína, flutning, virkni og jafnvel lita heilar taugar.

Mynd fengin af vefsíðu Marc Zimmers við Connecticut college.

Oddur Vihelmsson gerði það sem mbl.is hefði átt að gera og útskýrði eiginleika prótínsins og notagildi (sjá einnig frétt BBC um verðlaunin).

Ég hélt að mbl.is gæti ekki gert Nóbelnum lítilfjörlegri skil en með frétt um verðlaunin í læknisfræði (frétt og athugasemd) en hér er markið sett enn lægra. T.d. eru einungis tveir verðlaunahafarnir bandaríkjamenn, sá þriðji Osamu Shimomura er japanskur. Þótt frétt vísis.is sé ekki ítarleg er hún þessu hálfkveðna vísubroti skárri. Í því samhengi er rétt að lyfta hatti fyrir fréttablaðinu fyrir ítarlega umfjöllun um Nóbelsverðlaunin í læknisfræði í þriðjudagsblaðinu (því miður er sú umfjöllun ekki aðgengileg á netinu).

*Efnafræðingar eru örugglega bonsúrir fyrir þessa útvötnun á verðlaunum.


mbl.is Þrír Bandaríkjamenn fá efnafræðinóbelinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Oddur Vilhelmsson

Já, ugglaust er það rétt að klassískum efnafræðingum þyki vegið að sinni stétt með þessum verðlaunum. Ekki síst í ljósi þess að Kornberg fékk efnafræðinóbelinn í hittifyrra fyrir vinnu sína varðandi umritunarferli heilkjörnunga. En, þetta undirstrikar auðvitað bara yfirburði lífvísinda yfir „hörðu raunvísindunum“

Oddur Vilhelmsson, 8.10.2008 kl. 17:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband