Leita í fréttum mbl.is

Klónaðir bananar

Velflestar bananaplöntur sem ræktaðar eru í heiminum hefur verið fjölgað með græðlingum, en ekki með fræi. Vísindamenn hafa lengi varað við hættunni af þessu, því slík einræktun veldur því að lítill breytileiki finnst í stofninum. Ef enginn breytileiki er til staðar þá er allur stofninn í hættu, ef pestir ná fótfestu.

Þess vegna eru það mjög alvarlegar fréttir að tvær plágur herji nú á bananaekrur í Afríku. Erfðabreytileiki er ekki bara áhugamál þróunarfræðinga og vistfræðinga, heldur lífsnauðsynleg auðlind.

Ítarefni:

Banana diseases hit African crops  Thursday, 27 August 2009

Lack of Sex Life Threatens Banana Crops Steve Conner The Independent July 27, 2001 (af vef national geograpic)


mbl.is Bananauppskera í Afríku í hættu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is)

Athyglisvert.

En ætli Egill Helgason ráði þarna ríkjum? Hann treystir auðvitað ekki vísindamönnum til að benda á hættur.

Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is), 28.8.2009 kl. 13:56

2 Smámynd: Arnar Pálsson

Ég treysti mér ekki að segja til um hversu víða áhrifa Egils Helgasonar ná, en þau virðast teygja sig eitthvað upp eftir Miklubrautinni.

Arnar Pálsson, 28.8.2009 kl. 14:03

3 Smámynd: Rebekka

Ég las einhvern tímann að bananauppskera hefði gjörsamlega hrunið um miðja 20. öld vegna sveppasýkingar og að lokum hefði verið skipt um "tegund" (útsæði? afbrigði?),  frá s.k. "Gros Michel" í "Cavendish" banana, til að ná uppskerunni aftur á strik.  Skyldi þetta koma fyrir aftur bráðlega?

Rebekka, 31.8.2009 kl. 11:20

4 Smámynd: Arnar Pálsson

Rebekka

Svona einsleit ræktun er í mikilli hættu. Ef við værum skynsamari myndum við rækta fleiri afbrigði og undirtegundir, sem myndi skila sér í margfallt fjölbreyttari fæðu!

Arnar Pálsson, 3.9.2009 kl. 15:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband