Leita í fréttum mbl.is

Tólf þátta DNA

Einu sinni tilheyrði ég opnu leynifélagi, sem innihélt nokkra meistaranema á tilraunastofu Guðmundar Eggertssonar og Sigríðar H. Þorbjarnardóttur á Líffræðistofnun Háskólans. Á milli þess sem við klónuðum gen og einangruðum prótín, erfðabreyttum bakteríum og hreinsuðum DNA þá horfðum við á kvikmyndir byggðar á skelfilega lélegum vísindaskáldskap og auðvitað X-files í sjónvarpinu (mörkin á milli "Attack of the killer tomato" og Fox Mulder eru mjög óljós í minningunni!).

Eitt snilldaratriðið í X-files var þegar þau rákust á lífsýni, og auk þeirra 4 basa sem finnst í DNA allra lífveru fundu þau ....Fimmta basann. Þetta var næstu því jafn skemmtilegur þáttur og þegar Mulder og Scully fundu fjölskylduna í Vestur Virginíu sem var öll örkumluð vegna galla í hoxgenunum (já og innræktunar!).

Það er eitt að bulla til að skemmta fólki, það er annað að bulla til að hafa af því pening (og jafnvel stefna lífi þess í hættu).

Ég fékk í morgun ábendingu um nýja vöru/lýgi sem gæti allt eins verið framleidd af X-files genginu. 

12 stranded DNA

Medical science has established that we have 2 strands of DNA and 10 strands of “junk” DNA, but they have not understood the purpose of that “junk” DNA. Recent information has revealed its higher purpose; supporting a multidimensional consciousness, our natural state. Realigning, reconnecting and activating our 10 strands of junk DNA (aka the DNA Recoding or RRA Process) is the process by which we attain that state. When we are multidimensional, our physic abilities are reawakened and we have developed a second neural network at the etheric level. This second neural network is what allows us to live in multiple dimensions at once. We can hear, see and communicate with others in these dimensions.

Úr pistlinum Recoding To 12 Strand DNA Sequence And Entering Into The Photon Belt

Hvað í þessari málsgrein stenst nánari skoðun?

Jú, DNA er tvíþátta.

Allt hitt er 100% þvottekta, hreinræktaður, kristaltær ÞVÆTTINGUR.

Þetta er dæmi um svikabull, þar sem stokkað er saman fræðiorðum, nýaldarfrösum og jákæðum lýsingarorðum, til þess að hafa af fólki fé.

Áþekkur pistill: Lausnin er komin


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arnar

Oh.. og mig sem hlakkaði svo til að geta virkjað junk-DNAið í mér svo ég geti lifað í mörgum víddum samtímis.

Arnar, 30.4.2010 kl. 16:19

2 Smámynd: Arnar Pálsson

Ekki láta staðreyndirnar hlekkja þig, vertu það sem 10 þræðir ruslDNAisins þíns vilja að þú sért.

Arnar Pálsson, 30.4.2010 kl. 16:45

3 identicon

Hef séð þetta af og til. Þeir sem "heila" DNA og tala við stofnfrumuna sína lesa svo þvætting og trúa honum...

Vigdís (IP-tala skráð) 3.5.2010 kl. 15:01

4 Smámynd: Arnar Pálsson

Sæl Vigdís

Ég heyrði um það atriði, manneskjunni fannst ekkert að því að spinna einhverja þvæli til þess að geta haft fé af fólki.

Hugmyndaauðgi fólks er engin takmörk sett, en við verðum að gæta þess að raunveruleg þekking drukkni ekki í þvættingi.

Arnar Pálsson, 4.5.2010 kl. 09:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband