10.4.2010 | 14:37
Kraftaverkalyf, laukurinn og grefillinn
Fyrst þetta alvarlega, af vef vantrúar
Innerlight supergreens - Kraftaverkalyf?
Síðan skopið
Af vef grefilsins - þessi síða er algert æði
Heilaþveglar, Karlakrækjan, Skoðanaskiptir
Og síðan nýklassík af lauknum.
Scientists Successfully Teach Gorilla It Will Die Someday - ok þetta er frekar dapurlegt grín en samt merkilega fyndið.NASA Scientists Plan To Approach Girl By 2018 - dapurlega fyndið á annan hátt, sérstaklega fyrir þá okkar sem spyrja fyrst og kyssa svo.
NASA Delays Shuttle Launch Out Of Sheer Habit
Meginflokkur: Froða og sápukúlur | Aukaflokkur: Spaugilegt | Facebook
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó
Athugasemdir
Þetta sýrubasadæmi er eiginlega einum of... Sá svona flösku og hún er án allra upplýsinga og varúðarmerkinga. pH gildi innihaldsins, sem er mjög hátt, á að hlutleysa "súra vatnið" okkar svo grunnstyrkurinn sem myndar líkamsvökvann (blóð og annað) verði basískur.
og ekkert annað!
Haraldur Rafn Ingvason, 11.4.2010 kl. 16:59
Ég hef ekki rekist á þetta í búð.
Það var ástæða fyrir því að ég setti Grefilinn beint á eftir.
Það eiga að vera takmörk fyrir því sem fólk má staðhæfa til að selja vörun (meina draslið) sitt. Annars bíð ég spenntur eftir DVD-diskum sem:
- róa innra sjálfið með huglægum eldi, á sömu bylgjulengd og mitt persónulega DNA.
- stöðva geisla frá gervihnöttum sem CIA beinir að Íslandi til að gera okkur öll að neyslusjúklingum.
- sendir tón friðar til allra nágranna minna, sem eru að verða brjálaðir á blöndunni af Mansjúríusveppnum og þráðormakóloníunni (sem ég var að vonast eftir að markaðssetja sem hið næsta nýaldarplokk - detox er fyrir pelabörn, fullvaxta þráðormasýking hreinsar sko almenninlega til í ristlinum).
Arnar Pálsson, 11.4.2010 kl. 17:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.