7.7.2016 | 09:53
Setjum Náttúruvernd Íslands á laggirnar
Sigrún Helgadóttir ræðir um mikilvægi þess að samræma nátturuvernd á Íslandi, í grein í Fréttablaði gærdagsins. Þar segir hún:
Vorið 2002 var samþykkt á Alþingi að stinga veikburða starfsemi náttúruverndar á Íslandi ofan í skúffu hjá öflugri Hollustuvernd ríkisins svo að úr yrði Umhverfisstofnun. Það var mikið óheillaskref fyrir náttúruvernd á Íslandi. Í stað þess hefði átt að skerpa línur á milli fagsviða og efla Náttúruvernd ríkisins og færa undir þá stofnun hina fjölmörgu aðila sem höfðu það hlutverk að annast land sem nýtt var til náttúruverndar, upplifunar og ferðalaga. Það verður sífellt ljósara hversu slæm og skammsýn ráðstöfun þetta var. Sem betur fer var þetta mannanna verk sem hægt er að bæta úr og það verður að gera sem allra fyrst.
Náttúruvernd Íslands ætti að halda utan um öll friðlýst náttúruverndarsvæði landsins. Þau eru fjölmörg, stór og smá, um allt land og friðlýst á ýmsa vegu; friðlönd, náttúruvætti og þjóðgarður (Snæfellsjökull). Sum svæðin eru í raun þjóðgarðaígildi, til dæmis Friðland að fjallabaki og Hornstrandafriðland. Á sínum tíma, þegar þessi svæði voru friðlýst, var ákvæði í náttúruverndarlögum sem kom í veg fyrir að hægt væri að friðlýsa þau sem þjóðgarða vegna þess að svæðin voru ekki ótvírætt eða ekki að öllu leyti í eigu ríkisins. Eftir að náttúruverndarlögum hafði verið breytt hefði verið hægt að vinna að því að þau og fleiri svæði nytu verndar og viðurkenningar sem þjóðgarðar. Ekki er að sjá að svo sé unnið...
29.6.2016 | 12:03
Erindi Jane Goodall á youtube
Þann 15. júní síðastliðinn hélt Jane Goodall erindi hérlendis. Ástkær forseti vor Vigdís Finnbogadóttir, kynnti Jane á einstakan og hjartnæman hátt.
Erindi hennar var tekið upp og myndband er nú aðgengilegt á veraldarvefnum undir HIvarp á youtube.
Heimsókn hennar var skipulögð af mörgum aðillum og einstaklingum. Fjárhagslegur stuðningur við heimsókn Jane Goodall til Íslands kom úr mörgum áttum, nánari upplýsingar má finna á vefsíðu heimsóknarinnar.
15.6.2016 | 10:47
Hafa apar kímnigáfu? Erindi Jane Goodall í dag
15.6.2016 | 09:33
Þrældómur í þekkingarverksmiðjunni
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 10:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó