26.5.2016 | 11:29
Það hafa alltaf búið Starkadderar á Kalsælustað...
Bærinn hokinn af elli og vanrækslu hangir utan í ás í Sussex. Starkadder fjölskyldan hefur búið þar í aldir, samanber einkennisorð ættarinnar, "það hafa alltaf búið Starkadderar á Kalsælustað". Yfir Kalsælustað (Cold comfort farm) ríkir ættmóðirin, Aða Dóms frænka (Aunt Ada Doom). Hún er sérlynd, mannfælin, langrækin fýlustjórnandi, sem heldur ættmennum sínum í spennutreyju ótta og ættrækni. Allir vita að ef þeir ígrunda brottflutning þá muni Aða tjúllast endanlega, og enginn þorir að bera ábyrgð á því. Ef viðkvæm mál koma til umræðu, bregður hún fyrir sig trompi. Hún segir drafandi kuldalegri röddu, "ég sá eitthvað skelfilegt í eldiviðarskúrnum..." (i saw something nasty in the woodshed). Enginn hefur minnstu hugmynd um hvað það var en setningin dugar til að slá öll mál og rök út af borðinu.
Aða Dóms er ekki eina litríka persónan á Kalsælustöðum, einnig má minnst á Amos eldklerk, Adam Lambadrátt (Lambsbreath), heimasætuna ljóðelsku Elfine og frú Bjöllu, jarðbundnu heimilishjálpina. Persónur þessar eru sköpunarverk enska rithöfundarins Stellu Gibbons. Cold comfort farm sem kom út 1932 var fyrsta bók hennar, og segir sögu af ungri konu Flóru Poste sem við fráfall foreldra sinna, þarf að flytja til fjarskyldra ættingja í sveitinni. Á bænum er allt í niðurníðslu eða andlegum lás. Nöfn kúnna, Graceless, Aimless, Feckless, og Pointless, endurspegla ástandið ágætlega.
Samkvæmt bókarýnendum The guardian er þetta eina af 100 bestu ensku bókum síðustu aldar. Ég las hana aftur nú í vor, og kunni ágætlega við. Hún er hugvekjandi, en að mestu meinlaus. Skrifuð lipurlega og með ágætri framvindu. Frú Gibbons æfði stíl sinn á því að skrifa fyrir blöð, en leyfir sér einnig ljóðrænu á köflum og galsalega nýyrðasmíð. Bókin er almennt þekkt sem gamansaga, eða háðsádeila á rómantísk skrif þessa tíma, en hefur einnig traustann undirtón. Sterk ung kvenpersóna kemur í nýjar aðstæður, og reynir að hafa jákvæð áhrif á líf fólks, þrátt fyrir ægivald ættmóðurinnar.
Það má alveg deila um hvað sé heppilegasta þýðingin á Cold comfort farm. Ég lék mér með nokkur tilbrigði, Frostnotastaði, Kaldalónsbæ, Frostsælushól, Kuldanotastaður...en skorti andríki fröken Gibbons.
Robert McCrum The 100 best novels: No 57 Cold Comfort Farm by Stella Gibbons (1932)
24.5.2016 | 13:24
Villtar kýr, simpansar og geirfuglar
Veröldin okkar er ekki nógu stór. Eftir að blómaskeið okkar mannanna hófst, höfum við haft gríðarleg áhrif á aðrar lífverur á jörðinni.
Stórir grasbítar réðu ríkjum á sléttum norður ameríku, áður en forfeður indjána komu þangað fyrir um 15.000 árum. Þeir voru allir veiddir upp til agna. Útdauði tegunda stórra fugla er velþekkt, hérlendis vegna Geirfuglsins sem er okkar "merkilegasta" framlag til málaflokksins.
Samt sem áður finnast enn villt spendýr í náttúrunni, jafnvel af tegundum sem við hugsum ekki um sem villt. Kýr (Bos taurus) eru dæmigert húsdýr, og við eigum erfitt með að átta okkur á því að þær hafi einhvern tímann verið villtar. En þær voru það í fyrndinni og svo merkilegt er að enn finnast nokkrir stofnar villtra kúakynja.
Forfaðir flestra kynja núverandi kúa (Bos primigenius) lifði í evrópu, en dó út á átjándu öld. Nokkrar tegundir villtra kúa eru til, t.d. yakuxar, vísundar og evrópuvísundar, en flestir stofnarnir eru litlir. Mestu skiptir þar að villtar lendur eru takmarkaðar, þar sem við mennirnir höfum nýtt nær allt undirlendi fyrir akra og borgir.
Svipað er uppi á teningnum hjá náfrændum okkar simpönsunum. Eftir því sem ég kemst næst eru líklega 4 tegundir simpansa til í Afríku, en stofnarnir eru margir hverjir mjög litlir og einangraðir. Stofn simpansa í Gombe við strönd Tanganyaka vatns telur t.d. bara rúmlega 100 dýr, og hefur hann bara um 34 ferkílómetra svæði til umráða. Einhverjum kann að virðast það kappnóg rými, en svo er ekki fyrir tegund sem var vön því að geta ferðast um stór svæði og fylgja framboði fæðunnar eftir.
Jane Goodall mun segja frá rannsóknum sínum í opnu erindi í Háskólabíói 15. júní n.k.
Allir eru velkomnir og hvattir til að mæta. Erindi Jane er stórkostleg upplifun.
https://www.facebook.com/JGIceland/
NY Times 23. maí 2016.23.5.2016 | 12:05
Fortíðin og nútíðin - fljótt skipast veður í lofti og loftslagið líka
19.5.2016 | 10:11
Allir skipta máli dýrin líka! Dr. Jane Goodall á Íslandi í júní
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó