Leita í fréttum mbl.is

Flott útsala í bóksölu stúdenta

Bóksala stúdenta er uppáhaldsbókabúðin mín hérlendis. Í erlendum borgum reyni ég að finna bókabúð með stórt safn, eða sem selur notaða titla, helst nálægt háskóla því þar er meira af vísinda og fræðibókum. Síðastliðið sumar dvaldi ég í East Lansing, við rannsóknarleyfi í Michigan State University. Reyndar var skólabókabúðin ómöguleg, en á verslunargötunni við hliðina var Curious Book Shop (www.curiousbooks.com/) sem geymdi marga gersemina.

Óður til bóksölunnar.

Sem áhugamaður um skáldverk og vísindabækur finn ég iðullega eitthvað spennandi í hillum eða borðum. Nú stendur yfir útsala á erlendum titlum, bæði fagurbókum og ljótum bókum, um fagra hluti og ljóta, gagnslausa og hagnýta, sem og hugmyndir stórar og smáar, sannar og rangar, óreyndar og margprófaðar, óljósar og skarpar, sundrandi og sameinandi. Ég gekk út með annað eintak af The amazing life of Henrietta Lacks (til gjafa), Crisis on campus eftir Mark Taylor og bók um erfðamengi mannsins (því mig vantar einmitt eina erfðafræðibók í viðbót...).

Hver var Henríetta Lacks - „Hvað eru HeLa-frumur?“. Vísindavefurinn 9.3.2015. http://visindavefur.is/?id=69338.


Hvað orsakar þunglyndi? Um blekkingar og hagsmuni

Meðal manna er breytileiki í mörgun eiginleikum, stærð, formi og hegðan. Atferli og lundarfar eru meðal merkilegustu eiginleika mannsins og líklegt er að þróun þessara eiginleika hafi verið ör í forfeðrum okkar þegar þeir slepptu trjágreinum og tóku að vafra um steppurnar.

Sem líffræðingi finnst mér forvitnilegt að velta fyrir mér líffræðilegum ástæðum ólíkra skapgerða, atferlis og lundarfars. Geðsjúkdómar eru samheiti fyrir ýktustu tilfelli breytileika sem finnst meðal mannkyns, en orsakirnar eru ansi illa þekktar.

Nokkrir þættir geta haft áhrif á breytileika í eiginleika, eins og í handalögun eða lundarfari. Þetta eru tilviljun, umhverfi og erfðir. Allir þessir þættir geta breytt líffræði einstaklinga og skapgerð. Einnig er algengt að sampil sé á milli þátta, eins og milli erfðaþátta og umhverfis, eða ólíkra erfðaþátta. En því fer fjarri að við vitum hverjar orsakirnar eru, jafnvel fyrir algengt ástand eins og þunglyndi.

Steindór J. Erlingsson hefur fjallað um þennan sjúkdóm, og kannað sérstaklega stórhættuleg tengsl lyfjaiðnaðarins og geðlæknastéttarinnar. Hann fjallar um málið í nýlegum pistli í Kjarnanum (Hvað orsakar þunglyndi? Um blekkingar og hagsmuni).

„Þunglyndi orsakast af ójafnvægi í boðefnakerfi heilans“, tjáði geðlæknirinn mér árið 2001. „Þunglyndislyfið kemur aftur á jafnvægi“, hélt hann áfram, „og verður þú að taka lyfið það sem eftir er ævinnar“. Ég hafði auðvitað enga ástæðu til annars en að trúa þessu. Jafnvægið lét hins vegar á sér standa því þunglyndið hélt áfram af miklum krafti næstu árin. Ég tók ýmsar gerðir geðlyfja samviskusamlega í þeirri trú að jafnvægi kæmist loks á. Svo kom áfallið. Árið 2006 breytti þunglyndislyf lífi mínu í martröð um margra mánuða skeið. Leikurinn endurtók sig árið 2007, þá með tveimur öðrum gerðum þunglyndislyfja.

Talsverður ótti kviknaði innra með mér þegar ég sá fram á að geta líklega ekki aftur tekið þunglyndislyf.  „Hvernig get ég losnað við þunglyndið“, hugsaði ég,  „ef líkaminn er búinn að hafna lyfjaflokknum sem ræðst beint á orsökina“? Þá vissi ég auðvitað ekki að bæði ég og geðlæknirinn minn höfðum verið blekktir. Staðreyndin er nefnilega sú að hugmyndin „um ‚efnaójafnvægi‘ í mannsheilanum er ein ótrúlegasta ofureinföldunin í vísindum og ein versta arfleifð lyfjaiðnaðarins“. Hún hefur líka haft skaðlegar afleiðingar.


Hagnýt þróunarfræði og laxfiskar

Við búum í heimi þar sem maðurinn hefur áhrif á næstum allar aðrar lífverur. Gott dæmi um slíkt eru virkjanir straumvatna, sem breyta búsvæðum, einangra stofna og geta valdið áfoki. Virkjanir á vatnasvæði Þingvallavatns höfðu mikil áhrif á fiskistofna í...

Í boði leiðréttingarinnar?

Eins og kjarninn hefur fjallað um er leiðréttingin ansi sérkennilega útfærð. Þórður Snær Júlíusson fjallað um þetta 11. nóvember, í pistlinum leiðréttingin leiðrétt . Þá fengu 3.281 aðilar, 539 einstaklingar 2.742 hjón eða sambúðarfólk, sem skulduðu yfir...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband