Leita í fréttum mbl.is

Hreinsunardeild náttúrunnar

Síldardauðinn í Kolgrafafirði er verulega sérstakur. Samkvæmt heimildum eru ekki dæmi um viðlíka fiskidauða á afmörkuðu svæði.

Íslendingum er þetta í fersku minni, en nokkrum spurningum er enn ósvarað. Ein þeirra er sú, hvaða afleiðingar hefur síldardauðinn á lífríki fjarðarins.

Valtýr Sigurðsson er framhaldsnemi í líffræði, og vinnur verkefni við Háskólasetrið á Snæfellsnesi, m.a. í samstarfi við Jörund Svavarsson við HÍ. Niðurstöðurnar er ansi forvitnilegar.

Fjallað var um málið á Rúv í vor.

Fyrir síldardauðann voru sniglar, krossfiskar, marflær, krabbar, skeljar og margar fleiri tegundir í firðinum. Núna er þar aðallega ein tegund, burstaormur sem nefnist capitella capitata. Í rannsókninni sem gerð var 1999 fannst einn slíkur ormur í firðinum. Núna eru þar um 35 þúsund ormar á fermetra og eru þeir stærri en áður hefur sést. 

Ormurinn þarf ekki mikið súrefni til að lifa af. Hann plægir botninn, étur lífrænan úrgang og drullu og getur afeitrað efni eins og ammoníak.  Valtýr svarar því játandi að ormurinn sé leið náttúrunnar til að hreinsa í firðinum. „Já og þetta er náttúrlega lífræn mengun þannig þetta er ekkert nýtt þetta er eitthvað sem náttúran er gerð til þess að takast á við. Þannig að við búumst við því að náttúran höndli þetta bara á nokkrum árum.“

Um verkefnið á vef Rannsóknaseturs HÍ í Stykkishólmi.

Frétt RÚV 22. mars 2014 Ein dýrategund í botni Kolgrafafjarðar


mbl.is Breyting á lífríkinu undir dauðu síldinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðmæti vísinda á mannamáli 18. nóvember

Ágústa Guðmundsdóttir, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands, fjallar um tilurð og vöxt líftæknifyrirtækisins Zymetech og tengsl þess við grunnrannsóknir í skólanum í öðru erindi fyrirlestraraðarinnar Vísindi á mannamáli sem Háskóli Íslands stendur fyrir. Erindið verður í Hátíðasal Háskóla Íslands þriðjudaginn 18. nóvember nk. kl. 12.10.

Vísindi á mannamáli er ný fyrirlestraröð Háskóla Íslands sem efnt er til að frumkvæði Lífvísindaseturs og Líffræðistofu Háskóla Íslands.

Markmiðið er að varpa ljósi á það hvernig vísindamenn háskólans reyna að afhjúpa leyndardóma náttúrunnar og hvaða þýðingu vísindarannsóknir hafa fyrir daglegt líf fólks, t.d. baráttu við sjúkdóma eða náttúruöflin eða til að auka lífsgæði og takast á við nýjar áskoranir tengdar breytingum í umhverfinu.

Líftæknifyrirtækið Zymetech byggist á rannsóknum Ágústu og Jóns Braga Bjarnasonar heitins, prófessors í lífefnafræði við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands. Zymetech grundvallast á áratugarannsóknum við Háskóla Íslands á meltingarensímum úr þorski og hagnýtingu ensímanna í lækningavörur og snyrtivörur á markaði.

Fjallað verður um gildi grunnrannsókna í nýsköpunarferlinu og það hvernig djúp þekking á ensímum, örverufræði, matvælafræði, lífefnafræði, frumulíffræði og lyfjafræði nýtist beint í hagnýtri líftækni. Nýsköpunarferli líftæknifyrirtækja er langt og flókið. Alþjóðlegir markaðir líftækniafurða, eins og t.d. lækningavara, eru stórir, kröfuharðir og nýjungagjarnir. Því krefst þróun nýrra lækningavara fyrir slíka markaði sífelldrar uppbyggingar hugvits og aukinnar þekkingar. Kostnaður við einkaleyfi, skráningu lækningaafurða, erlenda ráðgjafa, markaðsmál, leyfisveitingar og fleira er mikill en nauðsynlegur fyrir alþjóðlega markaðssetningu.

Zymetech hefur átt gott samstarf við Háskóla Íslands og Landspítala – háskólasjúkrahús um öflun rannsóknastyrkja, menntun framhaldsnema og birtingu vísindagreina. Einnig býður samstarfið upp á störf fyrir unga vísindamenn og aðgengi að sérhæfðri aðstöðu til grunn- og læknisfræðilegra rannsókna. Mikilvægi rannsóknasjóða fyrir nýsköpun og áframhaldandi uppbyggingu hugvits innan fyrirtækja á alþjóðamarkaði verður einnig rætt.

Um Ágústu Guðmundsdóttur
Ágústa Guðmundsdóttir lauk doktorsprófi í örverufræði og sameindalíffræði frá örverufræðideild Virginíuháskóla í Charlottesville í Bandaríkjunum árið 1988. Hún hefur verið gistiprófessor við skólann frá árinu 1989 og hefur jafnframt stundað rannsóknir við University of California, San Francisco og New York University. Frá árinu 1993 hefur Ágústa verið prófessor í matvælaefnafræði við Matvæla- og næringarfræðideild Heilbrigðisvísindasviðs en var dósent í sömu grein frá 1989–1993. Rannsóknir Ágústu hafa í vaxandi mæli beinst að notkun þorskaensíma gegn örverusýkingum og þróun lækningavara sem byggjast meðal annars á rannsóknum hennar í samstarfi við Zymetech. Ágústa hefur verið rannsóknastjóri Zymetech um árabil en rannsóknirnar hafa verið unnar í samstarfi við Háskóla Íslands. Hún hefur ritað fjölda vísindagreina og bókakafla um rannsóknir sínar og samstarfsmanna og leiðbeint fjölda doktors- og meistaranema. Auk þess hefur hún tekið virkan þátt í stjórnunarstörfum jafnt innan sem utan Háskóla Íslands.

Þetta er annað erindið í röðinni. Hið fyrsta var flutt af Jórunn E. Eyfjörð í október síðastliðinn.

Horfa má á fyrirlestur Jórunnar á vef HÍ - Brjóstakrabbamein og leitin að bættri meðferð.


Háskóli kaupir sér orðspor

Háskólar keppa sín á milli, um orðspor, starfsmenn og peninga. Þetta er sérlega áberandi í Bandaríkjunum og Evrópu, en einnig hafa lönd í Asíu hafa lagt púður í slíka samkeppni. Nýverið gaf US News and World Report (USNWR) út lista um röðun háskóla eftir...

Náttúra í jafnvægi? Veiðiskapur í Mývatni í 150 ár

Árni Einarsson forstöðumaður Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn , og gestaprófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild HÍ mun halda fyrirlestur um hugmyndir um jafnvægi í náttúrunni, út frá þekkingu á vistkerfi Mývatns. Erindið heitir ,,Náttúra í...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband