9.2.2010 | 16:31
Hvað er líffræði?
Eftir að ég "hlaut" þann heiður að taka þátt í kynningarstarfi* fyrir líf og umhverfisvísindadeild HÍ, þá hef ég velt því fyrir mér hvað líffræði eiginlega sé?
Svarið er margþætt, og kannski best að svara því með myndum.
Líf er barátta - hér eru húnar að slást í dýragarðinum í Kaupmannahöfn. Allar lífverur þurfa að berjast fyrir lífinu, takast á við systkyni sín, afræningja, bráð eða bara skuggann í skógarbotni. Mynd A.Pálsson - copyright.
Líf er fegurð - Lundar (Fraticula artica) eru fagurlega skreyttir, oft til að ganga í augu maka og gefa í skyn líkamlegt (ef ekki andlegts) heilbrigði. Mynd og copyright Sigríður R. Franzdóttir - með góðfúslegu leyfi.
Líf er fjölbreytileiki - blómabreiða í danaveldi. Allar lífverur mynda stofna, samsetta úr svipuðum en ólíkum einstaklingum. Breytileiki á milli einstaklinga er grundvöllur þróunar. Mynd A.Pálsson - copyright.
Líf er fæðing og dauði - Risafuran (Sequoiadendron giganteum) getur lifað í tvö þúsund ár, á meðan sumir gerlar þrauka vart daginn. Myndin af Grant hershöfðingja var tekin í Kings Canyon National Park. A.Pálsson - copyright.
*Hlutverk mitt og samstarfsmanna er að kynna deildina, útbúa fréttatilkynningar, sjá um að vefsíðan sé í lagi (sem hún er ekki - ég veit), taka á móti framhaldsskólanemendum sem vilja kynnast líffræði og skipuleggja annað kynningarstarf.
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkur: Vistfræði, dýrafræði, grasafræði | Breytt 17.2.2010 kl. 09:24 | Facebook
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.