16.2.2010 | 09:15
DNA fyrir ofan arininn og í eldhúsinu
DNA er eitt þekktasta tákn vísinda nútímans.
Mynd af wikimedia commons.
DNA er tvíþátta sameind, fósfóríbósakeðja með viðhangandi basa (A, C, G og T). Basarnir snúa inn í sameindina og parast á þar tveir og tveir (G með C og A með T).
DNA er skoðað með því t.d. að senda sýni í gegnum hlaup. Þau flytjast í gegnum hlaupið (kallað gel) vegna rafstraums, sem togar í DNAið (sameindin er neikvætt hlaðin).
Litlar DNA sameindir ferðast hraðar en stórar í gegnum hlaupið, af sömu ástæðu og krakkarnir stinga mann af í Kringlunni (þau smjúga auðveldar í þröngu rými).
Myndir af DNA sem dregið hefur verið á geli er nú orðið að list/markaðsvöru. Stíllinn er frekar einfaldur og útfærslan er sú að setja mismunandi liti á frekar einföld gel, sbr dæmi hér að neðan og gallerí fyrirtækisins Yonder biology.
Næst má maður búast við því að fólk fari að blanda DNA í eldhúsinu heima...heyrðu það er nú þegar að gerast Do-It-Yourself Genetic Engineering.
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkar: Erfðafræði, Froða og sápukúlur | Breytt 17.2.2010 kl. 09:23 | Facebook
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó
Athugasemdir
Við sem erum líffræðingar höfum alltaf litið á falleg gel sem list, jafnvel ef þau eru ekki í fallegum litum. Nú er best að fara lita gömlu gelin sem maður á í búntum, og kannski opna listsýningu.
Davíð Gíslason (IP-tala skráð) 18.2.2010 kl. 14:45
Sæll Davíð
Ég skora á þig að skanna gelin og leika þér smávegis í Photoshop eða Gimp. Kannski gætiru líka slett málingu á striga og sameinað herlegheitin, svona Jackson Pollock number 5 gel.
Arnar Pálsson, 19.2.2010 kl. 13:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.