18.2.2010 | 09:35
Háskóladagurinn 20 febrúar
Laugardaginn 20 febrúar verður kynning á Háskólanámi, í Ráðhúsi Reykjavíkur og á Háskólatorgi Háskóla Íslands.
Kynningin í HÍ verður frá 11 til 16, og eins og sjá má á námskynningasíðu og frétt um grunnnám við HÍ.
Að þessu tilefni munum við í líffræðinni opna tilraunastofurnar okkar í Öskju.
Þar getur hver sem er, ekki bara væntanlegir háskólanemar, komið og kynnst viðfangsefnum líffræðinnar.
Í fyrra vorum við með dæmi um tilraunir í grasafræði, örverufræði, dýrafræði og sameindalíffræði. Nemendurnir okkar fá að gera allskonar kúnstir, sumir eru að skoða lífríki hafsins (myndina skaffaði Fannar Þeyr Guðmundsson í Eyjafirði) en aðrir kafa í leyndardóma erfðaefnisins (mynd af vísindavöku, tekin af yðar æruverðugum).
Vefsíða líf og umhverfisvísindadeildar HÍ
Eldri kynningarsíða um Líffræðinám við Háskóla Íslands
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkur: Erindi og ráðstefnur | Breytt s.d. kl. 10:04 | Facebook
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.