29.4.2010 | 16:41
Sara og Marteinn í nærmynd
Tveir af nemendum okkar voru í viðtali hjá Leifi Hauksyni í Samfélaginu í nærmynd nú í morgun.
Marteinn lauk BS prófi í lífefnafræði og Sara prófi í BS prófi í líffræði. Þau eru bæði að ljúka við meistaraverkefni við HÍ, í sameindaerfðafræði og eru á leið í framhaldsnám í Heidelberg.
Eins og rætt var um í samfélaginu í nærmynd:
Á vorin standa margir námsmenn á krossgötum þar sem þeir velja sér framhaldsnám. Og stundum liggur leiðin þangað sem þeim hefði aldrei dottið í hug áður fyrr. Við ræddum við tvö íslensk ungmenni þau Söru Sigurbjörnsdóttir og Martein Þór Snæbjörnsson sem eru á leið í doktorsnám í lífvísindum, þau afrekuðu það að komast að í einni öflugustu rannsóknarstofnun Evrópu á sviði sameindalíffræði. Og hvað skyldu þau ætla að rannsaka?
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.