9.6.2010 | 15:18
Háskóli unga fólksins 2010
Nú á mánudaginn og þriðjudagin var fjöldi ungs fólks í heimsókn í Háskóla Íslands. Í Öskju voru nemendurnir kynntir fyrir verkfræði, jarðvísindum, eðlisfræði, stjarnfræði og líffræði. Hér fylgja tvær myndir úr líffræðistofunni.
Efri myndin sýnir sæbjúga í búri og fróðleiksfúsa gesti, og sú neðri hönd Péturs Halldórssonar sem einangraði DNA úr lauk fyrir börnin.
Fjallað var um Háskóla unga fólksins í fréttum RÚV mánudaginn 7. júní 2010. Pétur var spurður af því hvað lærir maður af því að einangra erfðaefni? Hann svaraði: við lærum bara hvernig lífið virkar.
Snaggarlegt svar, en ekki alveg nákvæmt. DNA er mikilvægur þáttur lífsins, en ekki sá eini. Eins og við vitum þá var fyrsta hermilífveran búin til með DNA úr vél, en umfrymi og prótín lifandi frumu. DNA eitt og sér er eins dautt og Oscar Wilde, en DNA í réttu samhengi getur gert "kraftaverk". Rétt eins og orð öðlast merkingu í samhengi. O. Wilde sagði í bókinni, Myndin af Dorian Gray.
I wonder who it was defined man as a rational animal. It was the most premature definition ever given. Man is many things, but he is not rational.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt 6.6.2011 kl. 13:30 | Facebook
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó
Athugasemdir
Ég þekki einn sem bíður spenntur eftir því að verða nógu gamall til að komast í Háskóla unga fólksins.
Þetta framtak er til mikillar fyrirmyndar.
Hólmfríður Pétursdóttir, 9.6.2010 kl. 16:28
Ha? Er Oscar Wilde dáinn? Og ég náði ekki einu sinni að kveðja hann. En hann lifir áfram í hjörtum okkar.
Annars finnst mér þetta mjög gott framtak til þess að vekja áhuga hjá grunnskólanemendum til að þeir velji framhaldsnám í raunvísindum. Námsráðgjafar hafa yfirleitt engan tæknilega menntun og geta þess vegna ekki gefið 9. og 10. bekkingum nein ráð um hagnýtt framhaldsnám. Kannski það sé auðveldara nú þegar viskiptanám er ekki "cool" lengur.
Vendetta, 9.6.2010 kl. 16:32
Takk fyrir Hólmfríður og Vendetta
Krakkar eru margir hverjir mjög forvitnir og fróðleiksfúsir. Sumir eru eitthvað viðkvæmir fyrir blóði eða "ógeði", en það skrifast líklega á þá staðreynd að flest börn alast upp í borgum og hvorki skynja né skilja náttúruna almennilega.
Lífið er sjaldan álitið "cool" í samfélagslegum skilningi, en telst örugglega "klassískt" í jarðsögulegu ef ekki menningarlegu samhengi.
Arnar Pálsson, 10.6.2010 kl. 11:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.