25.10.2010 | 13:07
Arfleifð Darwins: Myndir frá Galapagoseyjum
Hafdís Hanna Ægisdóttir opnaði á laugardaginn ljósmyndasýningu: á slóðum Darwins í Te og Kaffi Eymundsson Austurstræti. Hafdís Hanna er einn ritstjóra bókarinnar Arfleifð Darwins og fór til Galapagoseyja fyrir nokkrum árum til að stunda rannsóknir. Hún tók ógrynni ljósmynda, úrval má sjá í Te og Kaffi og fleiri að auki á myndasíðu hennar - http://www.flickr.com/photos/hafdishanna. Ég hef áreiðanlegar heimildir fyrir því að myndirnar séu falar.
Mynd Hafdís H. Ægisdóttir - copyright.
Sýningin stendur yfir frá 23. október - 23. nóvember 2010.
Bókin Arfleifð Darwins, þróunarfræði, náttúra og menning er gefin út í tilefni þess að í fyrra voru 150 ár liðin frá útgáfu Uppruna tegundanna og 200 ár frá fæðingu Charles R. Darwin. Markmið bókarinnar er að kynna íslendingum þróunarkenninguna, sem varpar ljósi á flest líffræðileg fyrirbæri og hefur vægi í læknisfræði, jarðfræði og jafnvel tölvunarfræði.
Hið íslenska bókmenntafélag gefur bókina út og býður í samstarfi við Bóksölu stúdenta upp á tilboðsverð á bókinni allan októbermánuð.
Sjá einnig fésbókarsíðu Arfleifðar Darwins.Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkur: Arfleifð Darwins | Breytt 31.10.2010 kl. 17:14 | Facebook
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.