4.2.2011 | 09:27
Erindi: Ester Rut og hagamýsnar
Föstudagsfyrirlestrar Líffræðistofnunar hefja göngu sína á ný eftir nokkura ára hlé.
Í fyrsta erindinu mun Ester Rut Unnsteinsdóttir fjalla um rannsóknir sínar á hagamúsum á Kjalarnesi. Ester vinnur að rannsóknum á samsetningu músastofnsins, nýliðun og öðrum þáttum. Af vefsíðu hennar - sem lýsir daglegu amstri rannsóknanna ágætlega:
Meginmarkmið rannsóknarinnar er tvíþætt: Annars vegar að varpa ljósi á vistfræði og árstíðasveiflur hagamúsastofns á blönduðu búsvæði (strandlengja, óræktaður mói, tún með skurðum) á Suðvesturlandi. Hins vegar að bera saman vistfræði og árstíðarsveiflur hagamúsastofna í tveimur ólíkum ræktunarlöndum. Annað svæðið er blandaður skógur og hitt er tún með skurðum og fjöruvist. Leitað verður svara við ýmsum vistfræðilegum spurningum varðandi lífssögu og afkomu hagamúsanna, svo sem:
Að kanna þéttleika í hagamúsastofnunum og hvort munur sé á stofnstærð eftir árstímum og búsvæðum.
Að athuga lífslíkur í hagamúsastofninum og hvort munur sé á lifun kynjanna eftir árstímum.
Að fylgjast með vexti, kynþroska og tímgun hagamúsa á hvoru búsvæði fyrir sig.
Ester stundar doktorsnám við Líf og umhverfisvísindadeild HÍ, og er einnig forstöðumaður Melrakkaseturs Íslands á Súðavík.
Föstudagfyrirlestrar Líffræðistofnunar eru öllum opnir meðan húsrúm leyfir og eru fluttir á íslensku (nema annað sé tekið fram). Dagskrá í heild sinni má nálgast á vef Líf og umhverfisvísindadeildar HÍ.
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkur: Erindi og ráðstefnur | Breytt s.d. kl. 09:34 | Facebook
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.