1.11.2013 | 14:07
Dagskrá líffræðiráðstefnunar 2013
Það er með stolti sem við* tilkynnum að gengið hefur verið frá Dagskrá líffræðiráðstefnunar 2013.
Ráðstefnan hefst kl 9 þann 8. nóvember með þremur yfirlitserindum í stóra sal Íslenskrar erfðagreiningar.
James Wohlschlegel UCLA - Proteolytic Control of Iron Metabolism and DNA Repair
Agnar Helgason HÍ og ÍE - Dissecting the genetic history of a human population: A decade of research about Icelanders
Heiðursverðlauna erindi - tilkynnt síðar...
Á laugardagsmorgninum verða einnig tvö yfirlitserindi um mál sem varðar Ísland sérstaklega.
Þóra Ellen Þórhallsdóttir HÍ - Afturábak eða nokkuð á leið: Staða náttúruverndar á Íslandi
Þorvarður Árnason - Rannsóknasetur Höfn - Er þörf á sérstöku ráðuneyti umhverfismála á Íslandi?
Auk yfirlitsernida verða 109 erindi og 81 veggspjald kynnt á ráðstefnunni, sem fjalla um margvíslegar rannsóknir á lífverum og lífríki jarðar. Myndin hér til hliðar er t.d. af kafara í Silfru. Jónína H. Ólafsdóttir mun fjalla um kortlagningu jarðfræði og lífríkisins í hraungjám og hellum Þingvallavatns. Jónína er forhertur kafari og er nýbyrjuð í þessu meistaraverkefni undir leiðsögn Bjarna K. Kristjánssyni á Hólum. Verkefnið er samt að miklu leyti hennar, og hún hefur m.a. fengið styrk frá National Geograpic Society til þess, og umfjöllun á vef tímaritsins.
Hægt að skrá sig á ráðstefnuna á vefnum til kvöldsins 7. nóv. Skráningarsíða.
Mynd er af vef Divethenorth.is. Picture © http://www.divethenorth.is.
Lífríki gjánna við Þingvallavatn
*blogghöfundur er formaður Líffræðifélags Íslands 2013-2014.
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkur: Erindi og ráðstefnur | Breytt 5.11.2013 kl. 13:57 | Facebook
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.