22.1.2014 | 15:03
Nýgræðingur sem skellti prófessor
Davíð rotaði Golíat. Hæstvirtur prófessor er afhjúpaður af nýgræðingi. Biblíusaga og saga úr nútímanum. Við elskum góðar sögur, sérstaklega óvænt endalok.
Bakgrunnur sögunnar er sálfræðirannsóknir Barböru Fredrickson, en hún hafði verið að leita orsaka mannlegrar velgengni. Tilgátan hennar var sú að nægilega mikil jákvæðni dugi til að yfirvinna erfiðleika og mislyndi, þannig að sumir einstaklingar blómstri.
Barbara starfaði með Marcial Losada, sem var viðskiptaráðgjafi með reynslu af líkanagerð, og þau settu fram nýstárlega kenningu í vísindagrein. Greinin hét Positive Affect and the Complex Dynamics of Human Flourishing, og inntakið var það að velgengni einstaklinga ylti á hlutföllum (3 á móti 1) jákvæðra og neikvæðra þátta. Og að um óstöðugt jafnvægi væri að ræða, ef fólk væri með hátt hlutfall hlyti það velgengi, en hinir rynnu í ógöngur.
Fredrickson notaði þessa niðurstöðu og aðrar við skrif bókar sinnar um jákvæðni (positivity), þar sem þessu töfrahlutfalli var haldið á lofti (Top-Notch Research Reveals the 3-to-1 Ratio That Will Change Your Life).
Það var bara einn galli á gjöf Njarðar. Stærðfræðin í greininni var alger grautur.
Til að greina það þurfti nýgræðing í faginu, nánar tiltekið hinn 53 ára gamla Nick Brown sem fór í framhaldsnám seint á lífsleiðinni.
Andrew Anthony fjallar um þessa einstöku atburðarás í grein í The Observer nú um helgina.
Grein hans er fanta vel skrifuð og því best að ljúka þessari litlu ábendingu.
Bestu þakkir til Steindórs fyrir ábendinguna.
Andrew Anthony The Observer, 19 Jan. 2014
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó
Athugasemdir
Þetta var fróðlegt og áhugavert - takk fyrir Arnar.
Sveinn Atli Gunnarsson, 22.1.2014 kl. 22:02
Sooo sad!
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 23.1.2014 kl. 09:09
Takk fyrir Sveinn og Vilhjálmur.
Arnar Pálsson, 23.1.2014 kl. 13:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.