24.3.2014 | 09:32
Ysta nöf og loftslagsvísindin
Loftslag jarðar er að breytast samfara aukinni losun loftslagstegunda af mannavöldum.
Þetta er staðreynd, en smáatriðin eru ekki alveg á hreinu. Það er að segja, við vitum t.d. ekki alveg hversu mikið hitinn mun aukast, eða hvar hitinn breytist mest, eða hvaða aðrar afleiðingar það mun hafa fyrir veðrakerfi og strauma í höfunum.
En til að geta búið til góð líkön um væntanlegar breytingar þurfum vísindamenn að skilja náttúrulegar sveiflur í hita og veðrakerfum. Við vitum öll um árstíðasveifluna, en einnig er vitað að stærri sveiflur eða umskipti gerast í veðurlagi jarðar. Íslendingar kannast flestir við Litlu ísöld, sem varaði frá 1450-1900.
Með því að kanna fjölda, samsetningu og dreifingu frjókorna í jarðlögum er hægt að meta sveiflur í loftslagi og öðrum þáttum.
Það er einmitt viðfangsefni fornvistfræði, sem er á mörkum líffræði og jarðfræði. Lilja Karlsdóttir doktorsnemi við Líf- og umhverfisfræðideild HÍ mun á morgun verja doktorsritgerð sína um birkifræ í jarðlögum.
Lilja var að rannsaka kynblöndun birkitegunda á nútíma (síðustu 10.000 ár, e. Holocene).
Erindi Lilju verður í Hátíðarsal aðalbyggingar kl 14.00 og heitir Kynblöndun íslenskra birkitegunda á nútíma lesin af frjókornum.
Prófdómari hennar Chris Caseldine prófessor við landfræðideild háskólans í Exeter flytur fyrirlestur mánudaginn 24.mars kl.16:30, í Öskju,stofu 132.
Heiti fyrirlestursins Chris er From esoteric fringe to Climategate the changing role of Quaternary science over recent decades and into the future.
Ítarefni
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkur: Erindi og ráðstefnur | Facebook
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.