Breytir ný tækni því hvernig við hugsum um náttúruna?
Geta nýjungar í öflun og meðferð gagna bætt náttúruvernd og auðveldað ákvarðanatöku?
Mun ný samskiptatækni færa fólk nær náttúrunni og auka skilning á verndun hennar?
William Adams spyr spurninga sem þessara. Bill Adams er prófessor við Cambridgeháskóla og heldur erindi við HÍ 5. febrúar nk. Kl. 16:00 í stofu 132 í Öskju.
Dr. Adams rannsakar og skrifar um náttúruvernd og sjálfbæra þróun. Erindi hans fjallar um áhrif stafrænnar tækni á náttúruvernd.
Ágrip af erindi hans:
Með tilkomu stafrænnar tækni opnast fjölmargir nýir möguleikar á sviði náttúruverndar. Tæknin breytir því hvernig gagna er aflað, einfaldar stjórnsýslu og auðveldar samskipti við almenna borgara. En gæti stafræn tækni breytt sjálfu inntaki náttúruverndar því hvernig við hugsum um náttúruna og höfum samskipti við hana, eða haft áhrif á náttúruverndarpólitík? Hvaða þýðingu gæti hin áhrifamikla sýndarveruleikatækni haft á náttúruverndarmál, eða tilkoma nýrra kerfa fyrir öflun, geymslu, greiningu og framsetningu gagna? Og ef í ljós kemur að náttúruvernd tekur breytingum með stafrænni tækni, breytir það þá einhverju?
Um fyrirlesarann:
W.M. Adams er prófessor og forseti landfræðideildar Cambridgeháskóla í Bretlandi. Hann hefur lengi rannsakað náttúruverndarmál og sjálfbæra þróun, bæði í Afríku og Evrópu. Rannsóknir hans fjalla einkum um samþættingu samfélagsþróunar og náttúruverndar og árekstra þar á milli. Rannsóknir hans um þessar mundir snúast m.a. um stjórnmál og náttúruvernd, og um hlutverk myndlíkinga á borð við þjónustu vistkerfa í stefnumótun um verndun náttúrunnar. Adams hefur skrifað fjölmargar bækur og greinar um þessi efni. Meðal bóka hans eru Future Nature (2003), Against Extinction (2004), Green Development (2009) og Trade-offs in Conservation (2010). Hann heldur einnig úti bloggsíðu um hugðarefni sín: http://thinkinglikeahuman.com/
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.