12.2.2015 | 15:00
Tilviljun og tilgangur í lífi og eilífð
Þekking á hvaða náttúrulögmálum gæti hjálpað okkur að skilja eðli og eiginleika mannsins sem tegundar? Eru það sömu lögmál og móta aðrar lífverur og vistkerfi jarðar? Hafa örlög okkar verið ákveðin eða veltur velferð okkar á tilviljun einni? Eru eiginleikar okkar og hegðan mótuð af erfðum, umhverfi eða tilviljun? Spurningar af þessu tagi brenna á fólki í dag, rétt eins og fyrir 2.500 og jafnvel 25.000 árum. Vísindin gera okkur kleift að varpa ljósi á svona spurningar, og þannig bæði á eiginleika manna og krafta náttúrunnar. Erfðafræðin getur t.d. metið áhrif erfða, umhverfis og tilviljunar á eiginleika lífvera, og hefur sýnt fram á flókið samspil allra þessara þátta. Hún sýnir líka að áhrif erfða eru missterk á ólíka þætti, frjósemi hefur lágt arfgengi en fingraför erfast auðveldlega.
Í þessari grein verður fjallað um stórar spurningar um vísindi og tilgang lífsins í ljósi bókar Jacques Lucien Monod (19101976) Tilviljun og nauðsyn, rit um náttúrulega heimspeki nútímalíffræði. Hún kom út árið 1969 í Frakklandi, en hérlendis haustið 2012 í ljómandi góðri þýðingu Guðmundar Eggertssonar. Í henni fjallar Monod um eðli lífsins, nýjar uppgötvanir í sameindalíffræði og hlutverk vísinda í samfélaginu. Tilviljun og nauðsyn er stórmerkilegt verk fyrir fólk með áhuga á lífi, heimspeki og stórum spurningum. En hvað felur hin nýja sameindakenning í sér fyrir líffræði og veröld manna?
Monod og hin smásæja veröld
Veröld smásærra lífvera og innviðir frumunnar vöfðust fyrir náttúrufræðingum nítjándu aldar og héldu margir þeirra að sjálfstæður lífskraftur, óháður lögmálum efna- og eðlisfræði, byggi í öllum lífverum eða að líf kviknaði af sjálfu sér. Tilraunir Louis Pasteur (18221895) og nokkura annarra brautryðjenda örverufræðinnar sýndu að líf væri komið af lífi og kváðu þar með niður hugmyndir um sjálfskviknun lífs. Jafnvel örsmáir gerlar fjölga sér með skiptingum, af einum gerli spretta tveir og svo koll af kolli. Þannig mjakaðist líffræðin smám saman undan oki gamalla hugmynda. Það gerðist meðal annars með innleiðslu tilraunavísinda og aðferða efna- og eðlisfræðinnar, en sú þróun hófst um aldarmótin 1900. Ýmsar fræðigreinar, þ. á m. örverufræðin, lífefnafræðin og erfðafræðin, lögðu síðan grunninn að sameindakenningunni í líffræði, sem oft er miðuð við uppgötvun James Watson (f. 1928) og Francis Crick (19162004) á byggingu erfðaefnisins árið 1953. Hin nýju fræði gjörbreyttu í kjölfarið líffræði, læknisfræði og skyldum greinum.
Saga Monods er að vissu leyti saga þessarar byltingar.
Þannig hefst greinarkorn okkar Tilviljun og tilgangur í lífi og eilífð: Um Tilviljun og nauðsyn eftir Jacques Monod sem birtist í Hug ( 26. Árg, 2014 Bls. 233246)
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 15:07 | Facebook
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó
Athugasemdir
Það er til kenning um það að sálin velji sér umhverfis-aðstæður og útlit áður en hún fæðist.
=Að sálin sé ódauðleg og fæðist aftur og aftur í ótal hlutverkum til að geta prófað sem flest af eign reynslu.
Allt líf okkar gengur út á karmalögmálið hvort sem að við trúum á það eða ekki= Ef þú gerir eitthvað gott fyrir aðra í þessu lífi þá gæti betra líf beðið þín í því næsta. Ef þú gerir eitthvað á kostnað annarra þá gætir þú verið kominn í skuld við LÖGMÁLIÐ. (ósýnilegt guðlegt lögmál óháð skipulögðum trúarbrögðum).
Hefður þú lesið Michael-fræðin?
http://thjodarskutan.blog.is/blog/gudspekifelag_s/entry/1487919/
Jón Þórhallsson, 12.2.2015 kl. 15:49
Sæll Jón
Ég held að sálin sé misskilin.
Það sem við upplifum sem sálina okkar, er afurð meðvitundar og samskipta okkar við aðra.
Sálin sem við erum með við 2 ára aldur er önnur en sál okkar við tvítugt eða nírætt.
Eins og skín e.t.v. í gegn þá trúi ég ekki á karma.
Orð Jean Paul Sarte sem birtust í fréttablaðinu í morgun eiga betur við.
Maðurinn er ekkert nema það sem hann gerir sjálfur úr sér.
Man is nothing else but that which he makes of himself.
http://en.wikiquote.org/wiki/Jean-Paul_Sartre
Þar að auki, er maðurinn það sem aðrir gera honum. Sagan er ekki bara okkar að skrifa, heldur geta aðrir lyft okkur upp eða barið niður.
Arnar Pálsson, 20.2.2015 kl. 10:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.