10.6.2015 | 10:02
Doktorsgráðan skilar launalækkun
Eftirfarandi grein birtist í Fréttablaðinu. Hún er endurbirt að áeggjan höfunda.
---------------------------------------
Brennandi áhugi og metnaður er oftast það sem drífur fólk til þess að fara í doktorsnám. Þótt fæstir geri sér von um ofurlaun þegar ákveðið er að leggja vísindin fyrir sig hvarflar það þó varla að neinum að doktorsprófið sjálft skili launalækkun. Þannig er nú samt raunin á Íslandi í dag.
Nýdoktorar: Meiri menntun, lægri laun
Nýdoktorar (e. postdoctoral researchers) starfa í háskólasamfélaginu við vísindarannsóknir eftir doktorspróf. Stór hluti nýdoktora starfar við Háskóla Íslands (HÍ) og tilheyrir Félagi háskólakennara (FH). Þegar samið var um launahækkanir hjá FH árið 2014 hækkuðu akademískir starfsmenn um 45 launaþrep og starfsmenn stjórnsýslu um 34 launaþrep. Nýdoktorar hækkuðu ekki um eitt einasta launaþrep.
Laun nýdoktora virðast vera einhliða ákvörðuð af samkeppnissjóðum landsins og ljóst er að þessi laun hafa ekki á nokkurn hátt fylgt launaþróun í landinu. Doktorsgráðan virðist, ótrúlegt en satt, gjarna fela í sér lækkun launa.
Í stefnumörkun Háskóla Íslands árið 2006 var lögð mikil áhersla á eflingu rannsókna og doktorsnáms. Efling doktorsnámsins átti án efa ríkan þátt í að styrkja stöðu Háskóla Íslands sem viðurkennds alþjóðlegs rannsóknarháskóla. Bág kjör nýdoktora og aðstöðuleysi þeirra er aftur á móti í hróplegu ósamræmi við yfirlýsta stefnu.
BA/BS- og MA/MS-gráður skila hærri launum
Laun nýdoktors eru töluvert lægri en meðallaun annarra ríkisstarfsmanna með háskólapróf. Þegar launakönnun Bandalags háskólamanna (BHM) fyrir árið 2013 er skoðuð má sjá að meðallaun fólks með BA/BS-gráðu (sem lokið hefur um þriggja ára háskólanámi) eru 65 þúsund krónum hærri en nýdoktora (sem lokið hafa um átta ára háskólanámi) við HÍ árið 2015 og laun MA/MS-menntaðra (sem lokið hafa um fjögurra til fimm ára háskólanámi) eru 100 þúsund krónum hærri. Einnig eru fjölmörg dæmi um að einstaklingar lækki í launum þegar doktorsnámi lýkur og þeir taka við starfi nýdoktors við Háskóla Íslands.
Nokkur raunveruleg dæmi
Starfsmaður Háskóla Íslands með doktorspróf gegndi stöðu sem krafðist meistaragráðu en þáði nýdoktorsstöðu innan sömu stofnunar sem krafðist doktorsprófs. Þrátt fyrir auknar menntunarkröfur lækkaði viðkomandi í launum um 70.000 kr. á mánuði við þessa tilfærslu.
Sálfræðingur sem starfaði innan Landspítala Háskólasjúkrahúss lauk doktorsprófi og fór í kjölfarið að sinna störfum nýdoktors. Ef sálfræðingurinn hefði þess í stað unnið sem klínískur sálfræðingur á Landspítala hefðu mánaðarlaun hans verið um 80.000 kr. hærri. Þess í stað eru kjör sálfræðingsins sem er á fertugsaldri, með doktorsgráðu og talsverða starfsreynslu sambærileg við laun nýútskrifaðs 27 ára sálfræðings án nokkurrar starfsreynslu.
Einstaklingur færði sig úr sambærilegu starfi við HÍ yfir í aðra stöðu nýdoktors innan sömu stofnunar. Við þetta lækkaði viðkomandi verulega í launum og var ekki kunnugt um þessa lækkun fyrr en eftir tæplega þriggja vikna vinnu í nýju stöðunni. Manneskjan, sem var fyrirvinna heimilisins með tvö börn á framfæri og himinhá námslán, hrökklaðist að lokum frá störfum vegna fjárhagsörðugleika. Hún fékk vinnu utan háskólans og tvöfaldaði við það laun sín.
Náttúrufræðingur sem starfaði við rannsóknir á Landspítala Háskólasjúkrahúsi hlaut styrk frá Nýliðunarsjóði Háskóla Íslands. Við það var Háskólinn orðinn vinnuveitandi hans í stað Landsspítalans og sjálfkrafa lækkaði viðkomandi starfsmaður í launum um 100.000 kr. á mánuði. Þessi starfsmaður situr enn á sömu skrifstofunni og vinnur enn að sömu rannsóknum. Það eina sem breyttist (fyrir utan doktorsgráðuna og aukna reynslu starfsmannsins) var hinn nýi vinnuveitandi og verri kjör.
Ástandið óviðunandi
Við þetta er að sjálfsögðu ekki hægt að una. Nýdoktorar styðja heilshugar þá kröfu að menntun skuli metin til launa og ætla sér ekki að sitja hjá í kjarabótum í þetta sinn.
Nýdoktorar fagna því að nýkjörinn rektor Háskóla Íslands, Jón Atli Benediktsson, hafi lýst því yfir að hann ætli að beita sér fyrir því að nýdoktorar fái sömu tækifæri og aðrir akademískir starfsmenn innan HÍ og að þeim sé boðið upp á sanngjörn launakjör miðað við reynslu þeirra og menntun kjör sem séu samkeppnishæf á alþjóðlegum vettvangi.
Með þessi vilyrði í farteskinu getum við nýdoktorar því ekki annað en verið bjartsýnir og bíðum þess full eftirvæntingar að sjá kjör okkar leiðrétt.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó
Athugasemdir
Það er spurning hvort að það mætti taka upp útboðskerfi meira hjá ríkinu frekar en staðlaða taxta?
http://thjodarskutan.blog.is/blog/thjodarskutan/entry/1770384/
Hvað væri Háskóli Íslands t.d. tilbúinn að borga mér í verktakagreiðslu ef að ég gæti svarað því hver hafi gert þetta korn-munstur á nokkrum mínútum?
https://www.youtube.com/watch?v=lJgdeN5qTKo&list=PLB2037FADF4BB91BB
Jón Þórhallsson, 10.6.2015 kl. 10:47
Sæll JónKornakramynstur eru ágæt á veggspjöld.
Arnar Pálsson, 11.6.2015 kl. 14:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.