19.5.2016 | 08:49
Simpansar vilja elda matinn sinn...
Er betra að borða matinn strakz eða bíða á meðan hann er eldaður?
Flestir halda að simpansar vilji helst hráan mat og skorti getuna og þolinmæðina til að elda mat.
Rannsóknir dýrafræðinga og atferlisfræðinga frá Harvard í Kongo sýna að apar eru tilbúnir að bíða eftir því að sæt kartafla sé elduð, frekar en að borða hana hráa. Það sýnir að þeir vilja frekar eldaðan mat og að þeir hafi þolinmæði til að bíða eftir matseldinni.
Rannsókninni var lýst í grein í Proceedings of the Royal society B og fjallað var um hana á vef New York Times. Þar má sjá myndbönd af hegðun simpansanna, og þeim tilraunum sem gerðar voru.
Þessi pistill er endurprentaður í tilefni af heimsókn Jane Goodall til landsins.
Hún heldur opið erindi í Háskólabíói þann 15. júní kl. 17:00. Allir eru velkomnir, aðgangur ókeypis.
https://www.facebook.com/events/755993367870603/
Eldri pistill:
Simpansar myndu elda, ef þeir hefðu tækifæri til þess
Ítarefni:
Chimps Would Cook if Given the Chance, Research Says NY Times 2 júní 2015.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.