13.10.2016 | 15:23
Getur einstaklingur vitað hvort hann er Gyðingur með því að taka próf?
Getur einstaklingur vitað hvort hann er Gyðingur með því að taka próf? Og þá hvar.
Spurningin fjallar um uppruna einstaklings. Ímyndum okkur Jón Strand, sem rekur á fjörur en man ekkert um sitt fyrra líf. Hver er ég og hvaðan kom ég, væru eðlilegar fyrstu spurningar Jóns. Hann gæti komist að erfðafræðilegum uppruna sínum með því að fara í erfðapróf.
Erfðapróf byggja á því að engir tveir einstaklingar hafa nákvæmlega sama erfðaefni, nema vitanlega eineggja tvíburar.[1] Mismunurinn í erfðaefninu kallast erfðabreytileiki og finnast um 15.000.000 slíkir meðal manna. Enginn einstaklingur hefur sömu samsetningu af þessum 15 milljón breytilegu stöðum í erfðaefninu sínu. Við tilheyrum öll sömu tegund, en samt er merkjanlegur erfðamunur á þjóðum heims. Munurinn birtist bæði í því að sumar stökkbreytingar finnast bara í vissum þjóðum, og einnig er tíðni algengra erfðabreytileika oft ólík milli meginlanda og þjóða.
Ástæðan fyrir þessu er saga mannkyns. Uppruni mannkyns er í Afríku og þar finnast flestar breytingar og mestur fjöldi ólíkra samsetninga af genum. Við fólksflutninga út úr Afríku og inn í Asíu breyttist erfðasamsetningin. Það er vegna þess að einungis hluti Afríkubúa fór í ferðalag og genin þeirra mynduðu nýjan erfðabrunn utan upprunalandsins. Í hvert skipti sem fólk fluttist, til Evrópu, Ástralíu og Ameríku breyttist erfðasamsetningin, umtalsvert mest vegna tilviljunar. Því má greina mun á þjóðum og ættbálkum um víða veröld með því að skoða ákveðna staði í erfðamenginu.
Víkjum aftur að Jóni Strand. Hann fór í erfðapróf. Næst þarf að bera niðurstöðuna saman við gagnabanka sem segir til um hvaðan sé líklegast að hann sé ættaður. Í ljós gæti komið að gen hans eru líkust genum frumbyggja Ástralíu eða Eldlands, en það er eyjaklasi við suðurodda Suður-Ameríku.
En upprunapróf af þessu tagi eru óvissu háð því sumir stofnar eru blandaðir og einstaklingar geta líka átt flókna sögu. Margar nútímaþjóðir eru tilkomnar vegna blöndunar fólks. Glæsilegustu blöndurnar eru í Ameríku þar sem frumbyggjar hafa blandast fólki frá Afríku, Asíu og Evrópu. Arfgerðir í þessum löndum endurspegla sögu þjóðarbrotanna, en einnig mikla blöndun undanfarnar kynslóðir. Einstaklingar geta einnig átt flókna sögu og kannast lesendur vafalaust við söguna af langafa frá Noregi eða frænkuna sem flutti til Vesturheims. Þekktasta dæmið hérlendis er líklega Hans Jónatan. Hann var ættaður frá Afríku og Danmörku, en settist að á Íslandi í byrjun 19. aldar.[2] Hans gat af sér hóp afkomenda hérlendis sem hver um sig erfði hluta af genum hans.
Samantekt:
- Erfðapróf geta sagt til hvaðan sé líklegast að einstaklingur sé ættaður.
- Margar þjóðir eru mjög svipaðar á erfðasviðinu og það flækir í sumum tilfellum túlkunina.
- Uppruni margra er flókinn, vegna þess að allir menn eru sömu tegundar, og það flækir einnig túlkun erfðaprófa.
Tilvísanir:
- ^ Reyndar hefur komið í ljós að erfðaefni þeirra er ekki nákvæmlega eins, sjá svar við spurningunni Eru eineggja tvíburar alltaf alveg eins?
- ^ Íslendingar eru svo aftur ættaðir frá Noregi og Bretlandseyjum, en það er lengra um liðið. Því er erfitt að segja hversu stór hluti erfðaefnis hvers okkar er ættaður hvaðan.
Heimildir og ítarefni:
- Gísli Pálsson. Hans Jónatan: Maðurinn sem stal sjálfum sér. Vefur Háskóla Íslands. 16. október 2014, sótt 19. maí 2016.
- Arnar Pálsson. Hvernig virka erfðapróf? Vísindavefurinn, 21. júní 2016, sótt 5. september 2016.
- Arnar Pálsson. Hvar eru rauðhærðir algengastir? Vísindavefurinn, 5. febrúar 2015, sótt 29. maí 2016.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó
Athugasemdir
Er það rétt að askhenazy gyðingar séu yfirleitt komnir af þrem eða fjórum konum?
Miðað við afrek þessa kynstofns í menningu og vísindum mætti ætla að þar séu kominir vitringarnir þrír (eða fjórir) frá Austurlöndum.
Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 13.10.2016 kl. 20:30
Are modern jews descendants of the tribe of judah one of the tribe of judah one the sons of Jacob
https://www.youtube.com/watch?v=lJWeyrnKqvA
Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 14.10.2016 kl. 22:09
Sæll Bjarni
Það er hægt að skoða uppruna þeirra bara frá hvatberanum og á vissum punkti skiptast gyðingar í 4 hópa, en tréð er samfellt þannig að þessir 4 hópar skiptast í fleiri hópa, og svo smærri og smærri undirhópa.
Nýleg gögn sýna einnig að einhverjir hóparnir eru með evrópskari hvatberalitninga, sem sýnir eitthvað genaflæði milli gyðinga og annara evrópubúa.
Frekar hæpið er að ætla að tengja erfðafræðigögn af þessu tagi við sögur úr biblíunni eða öðrum gömlum textum.
Arnar Pálsson, 26.10.2016 kl. 00:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.