20.3.2019 | 10:57
Staða þekkingar á fiskeldi í sjó
Hvað vitum við um fiskeldi í sjó og hugsanleg áhrif þess á umhverfið?
Hið íslenska náttúrufræðifélag efnir til málstofu um fiskeldi í sjó mánudaginn 25. mars kl. 17:15 í stofu 132 í Öskju, náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands. Aðgangur er öllum heimill og ókeypis.
Markmiðið er að kynna stöðu vísindalegrar þekkingar um hugsanleg áhrif fiskeldis á umhverfið. Ekki er leitað eftir afstöðu fræðimanna til málaflokksins heldur er fyrst og fremst boðið upp á upplýsingar, fróðleik og tækifæri til umræðna. Til fundarins munu koma vísindamenn á sviði líffræði og hafefnafræði með víðtæka þekkingu, bæði sem fyrirlesarar, fulltrúar á pallborði og sem sérfræðingar í sal.
Flutt verða þrjú stutt kynningarerindi en síðan verða umræður á pallborði og úr sal.
Málstofan tekur tvær klukkustundir í heildina. Þetta verður því knappur en fyrst og fremst upplýsandi og spennandi fræðslufundur.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 11:13 | Facebook
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó
Athugasemdir
Hérna kemur mitt framlag til þessa málaflokks:
https://thjodarskutan.blog.is/blog/thjodarskutan/category/3380/
Jón Þórhallsson, 20.3.2019 kl. 11:06
Aha.
Arnar Pálsson, 20.3.2019 kl. 12:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.