1.4.2008 | 11:29
Fljúgandi mörgæsir
Daily Mirror og Daily Telegraph bírtu í DAG, myndir af undri náttúrunar. Mörgæsir fara eins og allir vita sinna leiða syndandi eða á fæti. Nýlega fannst nýlenda mörgæsa á Suðurskautslandinu, þar sem hæfileikinn til að fljúga hefur þróast aftur. Myndskeið, með fyrirtaks lýsingu vísindamannsins Terry Jones, er sýnilegt á vefsíðum beggja blaða (Myndin að neðan er af vefsíðu Daily Telegraph).
Myndirnar eru úr nýrri þáttaröð BBC, sem kallast kraftaverk þróunar "The miracles of evolution".
Þáttröðin tekur einnig fyrir ótrúlegt dæmi um eðlur sem verjast afræningjum með því að gleypa sjálfan sig.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 11:32 | Facebook
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó
Athugasemdir
Það vantar bara að Karlakór Kolbeinseyjar taki lagið.
Guðmundur Benediktsson, 1.4.2008 kl. 12:18
Er nokkuð 1. apríl í dag?
Sigurbjörn Friðriksson (IP-tala skráð) 1.4.2008 kl. 13:16
Góður...... vantar bara slóð inn á Icelandexpress þar sem hægt er að panta beint flug til Suðurskautslandsins í tilefni dagsins á aðeins 7.349 kr. með sköttum, til að sjá undrin.
Katrín Lilja Ólafsdóttir, 1.4.2008 kl. 15:35
Karlakór Kolbeinseyjar fær frítt far með Iceland Express, til suðurskautslandsins. Mörgæsir bera fram drykki og síld.
Arnar Pálsson, 1.4.2008 kl. 17:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.