20.5.2008 | 09:27
Stefnumót við rostung
Spurði Albin einhverntíman, "hvað myndir þú gera ef" 900 kílóa rostungur kemur hlaupandi til þín? Persónur Ulf Löfgrens höfðu alltaf ævintýraleg ráð á takteinum. Natalie Angier þáði ráð frá Ronald J. Schusterman við Californíu háskóla í Santa Cruz (fullt af myndum á akademísku heimasíðunni, undir the animals). Myndin hér að neðan er af síðu New York Times.
Ronald ráðlagði henni að láta þá ekki ýta sér til hliðar...aha!
Í hreint dásamlegum pistli í New York Times rekur Natalie sitt fyrsta stefnumót við rostung, og kynnir okkur fyrir líffræði þeirra og þróunarlegu sérstöðu. Í ljós kemur að andlit þeirra eru ákaflega næm, t.d. finnst þeim dáldið eins og litlum börnum gott að láta blása framan í sig. Einnig eru veiðihárin bæði skynfæri og lúta af stjórn, eins og Dr. Reichmuth lýsir.
"ef þú setur fiskögn á veiðihárin fjærst munninum, bifast hárin og flytja ögnina yfir snjáldrið og upp í munninn"
á upprunalegri ensku:
that if you drop a little piece of fish on the whiskers away from the mouth, they can walk it along the whiskers, across the muzzle and into the mouth.
Ég skora á fólk að kíkja á grein Angiers og njóta lystisemdana, þótt illa hærð við séum í andliti.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 12:10 | Facebook
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.