Leita í fréttum mbl.is

Lítilla sæva, lítilla stranda...

Erfðir og umhverfi, hin eilífa deila um hvor þátturinn vegur meir. Í Njálu segir "fjórðungi bregður til fósturs". Svo mælti Sigmundur "En eigi er kynlegt að Skarphéðinn sé hraustur því að það er mælt að fjórðungi bregði til fósturs" í 42 kafla. Það þýðir að stór hluti hljóti að vera bundnir í erfðir. Samkvæmt Aðalsteini Sigurgeirssyni var sagt til forna "fjórðungi brygði til móður, fjórðungi til föður, fjórðungi til fósturs og fjórðungi til nafns." Sem útlegst að helmingur sé bundinn í erfðir.

Í Hávamálum er hinu gagnstæða haldið fram (i versi 53).

Lítilla sanda

lítilla sæva

lítil eru geð guma.

Því at allir menn

urðu-t jafnspakir;

half er öld hvar.

Sem má umorða sem, ef þú elst upp afdalahugsunarhátt, muntu hugsa eins og afdalamaður. 

Áhrif erfða og umhverfis eru mismunandi eftir því hvaða eiginleika lífveru er verið að ræða um. Að auki fer mat okkar á erfðaþáttum eftir því hvaða umhverfi lífveran er í eða hefur alist upp í. Erfðir, umhverfi og saga einstaklinganna eru nefnilega samofin, og oft mjög erfitt að rekja sundur þræðina. Sumar stökkbreytingar hafa bara áhrif á fósturstigi og áhrifin geta oltið á umhverfi.

Ég hef sitthvað út á offitugenafrétt mbl.is að setja, en aðallega titillinn. Fréttin í BBC var ekki beysin til að byrja með, en fyrirsögnin var þó örlítið skárri Obesity 'link to same-sex parent' BBC sunnudaginn, 12 júlí 2009. Fyrirsögnin "Offitugenin erfast ekki á milli kynja" er sérkennileg á marga vegu. Í fyrsta lagi gerir hugtakið offitugenin ráð fyrir að það séu sterkir erfðaþættir fyrir offitu. Í öðru lagi, "erfast ekki á milli kynja" er svo torskiljanlegt orðalag að það ætti líklega að kalla út björgunasveitina, því þetta gæti verið virkilega alvarlegt.

Samkvæm rannsókninni eru áhrifin bundin við kyn foreldranna. Af átta ára stúlkum með of feitar mæður voru 41% skilgreindar sem of þykkar, á meðan sama hlutfall var 4% ef mæðurnar voru ekki of feitar. Samsvarandi tölur fyrir átta ára drengi voru 18% og 3%.

Niðurstaða rannsóknarhópsins að þessi sterku kynbundnu áhrif hljóti að vera umhverfisleg, en ég er ekki fyllilega sannfærður. Margir eiginleikar í náttúrunni sýna sterk foreldraáhrif (móðuráhrif - maternal effects, föðuráhrif - paternal effects), og er ekki loku fyrir það skotið að hluti þessara áhrifa séu þannig til komin. Líklegast þykir mér að einhverskonar hormónaáhrif sé að ræða, því ekki bera feður drengi undir belti né gefa þeim á brjóst. Annar möguleiki gæti verið að mörkun erfðaefnis í kynfrumum sé á einhvern hátt mismunandi eftir næringaástandi og áhrif mörkunarinnar væru síðan kynbundin.

Áherslan í frétt BBC er á forvarnir því offita er áhættuþáttur fyrir marga sjúkdóma sem hrella vesturlandabúa. Með hliðsjón af umræðu um orkuneyslu og langlífi er einnig ljóst að við gerum margt vitlausara en að telja kalóríurnar okkar og gæta þess að hreyfa okkur reglulega.

Viðbót:

Málsgreinin um "fjórðungi bregður til fósturs" var leiðrétt eftir ábendingu frá Aðalsteini Sigurgeirssyni. Honum er þakkað sérstaklega fyrir leiðréttinguna.


mbl.is Offitugenin erfast ekki á milli kynja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mig langar að sjá tölur frá börnum sem alast upp hjá fósturforeldrum, þannig væri hægt að greina í sundur umhverfisþætti frá erfðaþáttum að einhverju leiti. Reyndar myndi það ekki svara því hvort hormónar frá móður hafi áhrif eða hvort það eru fyrirmyndir barnanna sem valda því að þau verði þykk. En það væri forvitnilegt ef sama hlutfall feitra barna myndi samt koma fram. 

Guðmundsson (IP-tala skráð) 13.7.2009 kl. 14:07

2 Smámynd: Arnar Pálsson

Guðmundsson, það er mjög góð leið til að prófa tilgátuna. Einnig fannst mér vanta að skoða börn með tvo þykka foreldra. Vandamálið við þessa rannsókn er sýnastærðin, um 250 fjölskyldur voru skoðaðar.

Arnar Pálsson, 14.7.2009 kl. 08:53

3 identicon

Varðar: "Erfðir og umhverfi, hin eilífa deila um hvor þátturinn vegur meir. Í Njálu var mælt, "fjórðungi bregður til fósturs, sem þýðir að 3/4 hljóti að vera bundnir í erfðir."

Reyndar var sagt í fornu að fjórðungi brygði til móður, fjórðungi til föður, fjórðungi til fósturs og fjórðungi til nafns. Með öðrum orðum gæti í hæsta lagi helmingur stafað af arfgengum þáttum (frá móður eða föður) og a.m.k. helmingur af umhverfi (fóstri, nafni).

Aðalsteinn Sigurgeirsson (IP-tala skráð) 17.7.2009 kl. 15:18

4 Smámynd: Arnar Pálsson

Margfaldar þakkir Aðalsteinn

Athyglisvert , ég þekkti ekki baksögu orðatiltækisins, aðeins hvernig það kom fram í Njálu. Túlkun mín er augljóslega ónákvæm. Ég leyfði mér að umskrifa færsluna með hliðsjón af athugasemd þinni.

Arnar Pálsson, 17.7.2009 kl. 17:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband