22.11.2009 | 16:04
Darwin bolir í úrvali
Hagsmunafélag líffræðinema (haxi, einnig á fésbók) hefur séð um veitingar og kaffi í kringum Darwin dagana 2009.
Haxi lét búa til boli í tilefni Darwin daganna, sem verða seldir nemendafélaginu til stuðnings (2000 ISK stykkið) - hafið samband við Haxa.
Nokkur litatilbrigði eru til en mest er eftir af þessum gráu (sjá til hliðar). Aðrar litagerðir eru gult (stelpusnið og small), fjólublátt (small) og brúnt (strákasnið - large).
Myndirnar er teiknaðar af listapennanum Bjarna Helgasyni (sjá einnig Ekkert), sem skóp meðal annars bæklinginn fyrir nýafstaðna líffræðiráðstefnu hérlendis og plakatið fyrir Darwin dagana (mynd að neðan).
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó
Athugasemdir
Nú er 150 ára útgáfuafmælið ekki á morgun heldur hinn. Verður partý?
Það var partý hjá mér á afmælisdag Darwins, enda eigum við afmæli sama dag. Aðeins 150 ár á milli okkar.
Jón Steinar Ragnarsson, 22.11.2009 kl. 16:27
Sæll Jón
Háskóli Akureyrar og Háskólinn á Hólum ætla að vera með smá húllumhúbla (lesist mjög virðuleg ráðstefna) í tilefni dagsins, undir yfirskriftinni Undur náttúrunnar.
Ég skora á fólk að gera sér dagamun, blása í blöðrur, baka pæ og drekka mjöð.
Í það minnsta kíkja á bókina sjálfa. Hún er aðgengileg á vefnum (skoða fyrstu útgáfu hún er best) og auðvitað í þýðingu Guðmundar Guðmundssonar.
Arnar Pálsson, 22.11.2009 kl. 16:45
Ég á bókina 1993 í útgáfu (Ekki hina annáluðu Cameron / Comfort útgáfuna, þótt gaman væri að eiga hana hehe)
Pældi mig í gegnum hana á sínum tíma og þetta er ansi læsilegt rit af fræðiriti að vera og ákafi Darwins geislar út úr henni, enda ekkert skrítið ef maður hugsar út í þær víðáttur, sem opnuðust hjá honum við þessa uppgötvun.
Kannski maður skelli sér yfir Lágheiðina og kíki á húlabbalúið.
Jón Steinar Ragnarsson, 22.11.2009 kl. 18:03
Þarf að fá mér bol...
Haraldur Rafn Ingvason, 22.11.2009 kl. 22:40
Krúttleg mynd af karlinum á bolnum. Verð að eignast einn.
Kama Sutra, 23.11.2009 kl. 03:33
Altso bol en ekki kall.
Kama Sutra, 23.11.2009 kl. 03:34
Þótt það geti verið ágætt að eiga kall líka. Ekkert út á þá að setja.
Kama Sutra, 23.11.2009 kl. 03:35
Jón Steinar, aha, bókafíkill!
Hún er merkilega læsileg, þó vitanlega hafi karl Darwin ekki verið nein Jónas Hallgrímsson.
Það er hægt að fara töluverðan spöl á ástríðunni, jafnvel yfir Lágheiðina.
Haraldur og Kama Sutra.
Haxi selur boli, en virðast ekki vera á þeim buxunum(eða pilsunum) að selja kalla í náinni framtíð.
Arnar Pálsson, 23.11.2009 kl. 10:42
Það væri gaman að eiga Charles Darwin "action figure". Svona í stíl við bolinn sem ég keypti mér hjá ykkur líffræðingunum.
Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is), 23.11.2009 kl. 15:35
Sævar
Hérna ertu komin með nýsköpunarhugmynd, sæktu um kennitölu og farðu að framleiða Galileó, Darwin, Newton og Crick.
Arnar Pálsson, 23.11.2009 kl. 16:33
Já ég væri til í Darwin kall. Svo ef maður er grand á því fylgir Hvutti með.
Jóhannes (IP-tala skráð) 23.11.2009 kl. 17:16
Jóhannes
Þú ert kominn með heila dótalínu, ég væri líka til í einn Kimura sitjandi á hlutlausri kenningu.
Arnar Pálsson, 23.11.2009 kl. 19:36
Áhugaverð vörulína að þróast hérna - allt út af einum kalli.
Kama Sutra, 24.11.2009 kl. 01:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.