Leita í fréttum mbl.is

Fjölbreytileiki sjávarlífsins

Í kjölfar landafundana miklu voru sendir út af örkinni leiðangrar sem könnuðu náttúru Afríku, Ameríku, Asíu og Ástralíu. Fyrir 300 árum vissi enginn á Íslandi að til væru kengúrur, hvað þá breiðnefir eða pandabirnir. Charles Darwin og Alfred Wallace ferðuðust um heiminn og söfnuðu eintökum af áður óþekktum plöntum, dýrum og steingervingum. Það varð kveikjan að hugmynd þeirra um þróun og um hlutverk náttúrulegs vals sem vél sem útskýrir aðlaganir lífvera að umhverfi sínu.

Höfin eru minnst kannaði hluti jarðarinnar, þrátt fyrir að þekja stóran hluta plánetunar og innihalda gríðarlegan lífmassa og fjölda tegunda. Það er því gríðarmikið verkefni fyrir höndum að kortleggja lífríki undirdjúpana.

pycnoeggs.jpg

Fyrir rúmum áratug var sett í gang verkefni með þetta markmið, Census of Marine Life. Verkefnið er mjög metnaðarfullt, og inniheldur stofnanir frá um 80 þjóðlöndum, þar á meðal Hafrannsóknarstofnun.

crossota_935425.jpg

Afraksturinn hefur verið kynntur með vísindagreinum, en einnig myndböndum, bókum og fleiru í þeim dúr (ekki undarlegt þar sem National geographic er einn af lykil þátttakendunum).

arcticpycnopodia.jpg

Við að sjá framandi lífverur (sbr myndir af vef COML) líður manni eins könnuði, sem er að takast á við eitthvað nýtt. Fyrir mér er það skemmtilegasta við líffræðina ekki endilega það sem maður veit, heldur allt sem maður á eftir að læra.

Viðbót:

Sjá einnig á síðu BBC.


mbl.is Fjölskrúðugt líf við hafsbotn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Darwin bolir í úrvali

Hagsmunafélag líffræðinema (haxi, einnig á fésbók) hefur séð um veitingar og kaffi í kringum Darwin dagana 2009.

Darwinbolur1 Haxi lét búa til boli í tilefni Darwin daganna, sem verða seldir nemendafélaginu til stuðnings (2000 ISK stykkið) - hafið samband við Haxa.

Nokkur litatilbrigði eru til en mest er eftir af þessum gráu (sjá til hliðar). Aðrar litagerðir eru gult (stelpusnið og small), fjólublátt (small) og brúnt (strákasnið - large).

Myndirnar er teiknaðar af listapennanum Bjarna Helgasyni (sjá einnig Ekkert), sem skóp meðal annars bæklinginn fyrir nýafstaðna líffræðiráðstefnu hérlendis og plakatið fyrir Darwin dagana (mynd að neðan).

 DarwinVeggspjald


Maís með fleiri gen en maður

Maís er eitt af undrum landbúnaðar. Á nokkrum árþúsunum tókst forfeðrum okkar að beisla villtar plöntur og velja úr afbrigði sem gáfu miklar afurðir. Bændurnir nýttu sér grundvallaratriði þróunarlögmáls Darwins, mannkyninu til hagsbóta. Tilurð maís úr...

Undur náttúrunnar - 24 nóvember

Þriðjudaginn 24 nóvember 2009 verða 150 ár liðin frá útgáfu uppruna tegundanna . Að því tilefni efna Háskóli Akureyrar og Háskólinn á Hólum til ráðstefun undir heitinu Undur náttúrunnar . Fyrirlestrarnir skiptast í nokkrar málstofur: Náttúra Norðurlands:...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband