Leita í fréttum mbl.is

Náttúrustofuþing

Úr fréttatilkynningu:

Náttúrustofuþing 2009
 
Þann 8. október næstkomandi munu Samtök Náttúrustofa á Íslandi (SNS) standa fyrir  náttúrustofuþingi. Þetta er í fimmta skipti sem slíkt þing er haldið í tengslum við ársfund félagsins.
Að þessu sinni sér Náttúrustofa Reykjanes í Sandgerði um undirbúning þingsins og verður það haldið í Samkomuhúsinu í Sandgerði. Dagskráin hefst klukkan 09.30 með ávarpi umhverfisráðherra og stendur til 17:00 eins og meðfylgjandi dagskrá sýnir.

Þingið er öllum opið, bæði á allt þingið eða einstaka fyrirlestra.

Meðal þess sem fjallað verður um er

Alvarleg áhrif B-vítamínsskorts meðal fugla: Gunnar Þór Hallgrímsson

Hvernig hefur Morsárjökull það eftir berghlaupið 2007?: Þorsteinn Sæmundsson

Hvað er líkt með mýi?: Þóra Hrafnsdóttir


Merkilegustu korn

Ríbósómin eru ein ótrúlegustu fyrirbæri sem finnast í frumum. Þau eru samsett úr tveimur ögnum, sem eru aftur samsettar úr nokkrum RNA sameindum og fjölda prótína. Þau eru prótínverksmiður frumunar, og eru sem slíkar lífsnauðsynlegar. Ótrúlega mikill hluti orku og hráefna frumunnar fer í að mynda og viðhalda ríbósómum. Af heildarmagni RNA í frumum eru rRNA sameindirnar (sem mynda ríbósómin) um helmingur.

Það er einnig merkilegt að RNA sameindirnar í ríbósómum gegna hvötunarvirkni, eiginleika sem í lífverum er nær eingöngu bundinn við prótín. Það er vísbending um að snemma í sögu lífsins hafi RNA verið ríkjandi sameind. Eins og Guðmundur Eggertsson rakti í erindi sínu á laugardaginn og í bók sinni, þá er líklegt að RNA hafi komið snemma fram á sjónarsviðið, en síðan hafi prótínmyndun og DNA fylgt í kjölfarið. 

Ríbósómin eru elsta, flóknasta og nákvæmasta örtæknivél jarðarinnar.

Mér finnst ákaflega gaman að bæði nóbelsverðlaunin í ár fari til fólks sem hefur rannsakað prótín-RNA flóka. Blackburn,  Greider og Szostak fengu á mánudaginn verðlaunin í læknisfræði fyrir rannsóknir sínar á litningaendum og telómerasa.

Ég veit ekki hvernig efnafræðingarnir bregðast við þessum tíðindum. Í fyrra voru efnafræðiverðlaunin veitt fyrir GFP og núna fyrir ríbósómin, sem hvorutveggja liggja á mörkum lífefnafræði og líffræði. Það hlýtur að vera fullt af framúrskarandi efnafræðirannsóknum. Ástæðan fyrir þessum úthlutunum er að hluta til sú að nóbelsverðlaunin eru bara veitt fyrir ákveðnar fræðigreinar, t.d. eru engin verðlaun ekki í líffræði, jarðfræði eða umhverfisfræði. Það er ágætt að rifja upp að hagfræðiverðlaunin voru seinni tíma viðbót bankamanna í skandinavíu.

Ítarefni

Sjá fréttatilkynningu Nóbelsnefndarinnar.

Svar Sigríðar H. Þorbjarnardóttur á vísindavefnum við spurningunni, hvernig myndast prótín í líkamanum?

Svar Guðmundar Eggertssonar á vísindavefnum við spurningunni, hvernig varð fyrsta genið til? Hefði það getað komið utan úr geimnum?


mbl.is Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir á ríbósómum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

CCCCAA

Sex basar í röð, CCCCAA, endurteknir aftur og aftur vernda litninga frumdýrsins Tetrahymena . Endurtekningar þessarar raðar CCCCAA er það sem kallað er telómerar (þýtt oddhulsa af Magnúsi Jóhansssyni). Litningar heilkjörnunga eru línulegir, á meðan...

Forfaðir eða frænka

Nýrri tegund mannapa er lýst í Science vikunnar. Ardipithecus ramidus var samkvæmt aldursgreiningu uppi fyrir um 4.4 milljónum ára, og svipar henni sterklega til leifa forfeðra nútímamannsins. Til viðmiðunar er talið að menn og simpansar hafi aðskilist...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband