Leita í fréttum mbl.is

Tímamótasamningur og flutningur íþróttafræði til Reykjavíkur

Það er forvitnilegt að sjá samhengið í fjárveitingu ríkisstjórnarinnar.

Nýr búvörusamningur er undirrituaður, sem eykur greiðslu til bænda um 900 milljónir á ári.

Á sama tíma eru hækka framlög til landspítala og háskóla um smáræði, í fjárlögum fyrir árið 2016. Hækkanirnar ná ekki einu sinni að dekka launasamninga, sem ríkið sjálft undirritaði í fyrra. Þannig að HÍ t.d. þarf að kenna sama fjölda nemenda fyrir næstum sama pening, en samt borga kennurunum hærri laun. Eitthvað þarf undan að láta.

Síðan er umhverfisráðherra gáttaður á því að HÍ þurfi að færa íþróttafræðinám frá Laugavatni til Reykjavíkur, og talar um að Háskóli Íslands standi ekki undir nafni.

Ef svo er þá er ábyrgðin fjárveitingavaldins og ráðherra ríkisstjórnarinnar. Þeim er i lófa lagið að styðja almennilega við HÍ, til að hann geti starfað um byggðir landsins og stuðlað að samfélagslegum og fjárhagsleum framförum.

Háskóli Íslands og Landsspítalinn hafa lent undir því þingmenn setja kjördæmi ofar grundvallaratriðum. Því þurfum við að breyta með samsetningu næsta þings.


mbl.is „Tímamótasamningar“ við bændur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Málþing um háskólamál á vegum Vísindafélags Íslendinga 26. feb.

Málþing um háskólamál á vegum Vísindafélags Íslendinga
Vísindafélag Íslendinga stendur fyrir tveimur málþingum um háskólamál 26. febrúar og 22. mars.
Málþingin verða haldin í sal Þjóðminjasafns Íslands
26. febrúar: Fjármögnun háskóla á Íslandi
12:00 - 12:20: Saga reiknilíkansins og þróun erlendis
Ásdís Jónsdóttir, sérfræðingur við mennta- og menningarmálaráðuneytið
12:20 - 12:40: Framlag ríkisins til háskólamála
Magnús Karl Magnússon, prófessor við HÍ
12:40 - 13:15: Umræður
Fundarstjóri. Ragnhildur Helgadóttir, prófessor við HR
22. mars: Matskerfi háskólanna
12:00 - 12:20. Vinnumatskerfi ríkisreknu háskólanna
Hákon Hrafn Sigurðsson, prófessor við HÍ
12:20 - 12:40. Matskerfi Háskólans í Reykjavík
Kristján Kristjánsson framkvæmdastjóri rannsókna og upplýsinga við HR
12:40 - 13:15. Umræður
Fundarstjóri. Þórunn Rafnar deildarstjóri hjá Íslenskri erfðagreiningu
Boðið verður upp á öflugt vísindakaffi og bakkelsi á undan málþingunum frá kl. 11:30


Kerfisbundinn launamunur fræðagreina og kynja við opinbera háskóla

Eftirfarandi grein eftir nokkra kennara við HÍ birtist í Fréttablaði dagsins. Kerfisbundinn launamunur fræðagreina og kynja við opinbera háskóla Við opinbera háskóla á Íslandi er notast við svokallað vinnumatskerfi. Vinnumatskerfið byggir á talningum á...

Óeðlileg hvatakerfi í vísindum

Afrakstur vísinda er þekking, aðferðir og lausnir á vandamálum. En hvernig er best að mæla þekkingu, aðferðir eða lausnir? Staðreynd málsins er að það er mjög erfitt, og sérstaklega að bera saman milli fræðasviða. Hvernig ber maður saman merkilega nýja...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband