19.1.2015 | 10:12
Frænka alnæmisveirunnar fannst hérlendis
Alnæmisveiran er ein viðskotaversta veira sem mannkynið tekst á við. Andstætt flestum öðrum veirum veldur hún hægri sýkingu. Þannig að fólk getur verið með sýkt, án þess að gera sér fyllilega grein fyrir því. Sýktir einstaklingar geta því smitað aðra óaðvitandi um eigin sjúkleika. Alnæmisveiran (HIV) telst til lentiveira, sem valda hæggengum veirusýkingum.
Lentiveirur voru hins vegar velþekktar þegar HIV einangraðist. Sérfræðingar á Keldum undir stjórn Björns Sigurðssonar forstöðumanns tókust á við sérkennilegar sýkingar í íslensku sauðfé um miðbik síðustu aldar. Björn var afburða snjall vísindamaður og leiddi að því líkur að pestirnar mæði og visna voru veirusjúkdómar. Hann fékk veirufræðinginn Halldór Þormar til liðs við sig, og þeim tókst að rækta veirurnar í frumurækt (sjá mynd) og staðfesta tilgátur Björns.
Halldór Þormar mun fjalla um þessar tímamóta rannsóknir, og skyldleika Mæði-visnuveirunnar og alnæmisveirunnar í erindi þriðjudaginn 20 janúar 2015. Úr tilkynningu:
Vísindauppgötvanir á Íslandi tengdar veirusjúkdómum í sauðfé og mikilvægi þeirra fyrir skilning á alnæmisveirunni eru meginefni erindis sem Halldór Þormar, prófessor emeritus í frumulíffræði við Háskóla Íslands, flytur í Hátíðasal Háskóla Íslands þriðjudaginn 20. janúar kl. 12.10. Um er að ræða þriðja erindið í nýrri fyrirlestraröð á vegum Háskóla Íslands sem nefnist Vísindi á mannamáli.
Blessunarlega hafa rannsóknir og forvarnir gert okkur kleift að stemma stigu við alnæmisfaraldrinum á vesturlöndum og hægja á honum í Afríku. En rétt eins og í tilfelli Eboluveirunnar, þá er mikilvægast að berjast við sjúkdóminn þar sem smithættan er mest og dauðsföllin flest.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 11:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.1.2015 | 13:08
Vísindi á mannamáli Mæði-visnuveirur og tengslin við alnæmi
Vísindauppgötvanir á Íslandi tengdar veirusjúkdómum í sauðfé og mikilvægi þeirra fyrir skilning á alnæmisveirunni eru meginefni erindis sem Halldór Þormar, prófessor emeritus í frumulíffræði við Háskóla Íslands, flytur í Hátíðasal Háskóla Íslands, þriðjudaginn 20. janúar nk. kl. 12.10. Um er að ræða þriðja erindið í nýrri fyrirlestraröð
á vegum Háskóla Íslands sem nefnist Vísindi á mannamáli.
Alnæmisveiran HIV fannst snemma á níunda áratug tuttugustu aldar í sjúklingum með forstigseinkenni alnæmis. Rannsóknir sýndu að HIV veldur sjúkdómnum og í ljós kom að veiran var svokölluð lentiveira, sú fyrsta sinnar tegundar sem fannst í mönnum.
Nærri 30 árum áður höfðu veirur af þessum flokki fundist hér á landi í sauðfé við rannsóknir að Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. Halldór Þormar, sem tók þátt í þessum tímamótarannsóknum, mun segja frá þeim í erindi sínu.
Halldór Þormar á að baki glæsilegan feril sem vísindamaður við Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum, sem prófessor í frumulíffræði við Háskóla Íslands og við rannsóknir í háskólum og rannsóknastofnunum víða um heim.
Um fyrirlestraröðina
Vísindi á mannamáli er ný fyrirlestraröð Háskóla Íslands sem efnt er til að frumkvæði Lífvísindaseturs og Líffræðistofu Háskóla Íslands. Markmiðið er að varpa ljósi á það hvernig vísindamenn háskólans reyna að afhjúpa leyndardóma náttúrunnar og hvaða þýðingu vísindarannsóknir hafa fyrir daglegt líf fólks.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Nánari upplýsingar má finna á slóðinni:
www.hi.is/visindi_a_mannamali
13.1.2015 | 12:21
Kjarninn: Erum Charlie þar en ekki hér
12.1.2015 | 12:17
Hin mörgu andlit Plágunar og snilld Alberts Camus
Vísindi og fræði | Breytt 18.8.2017 kl. 14:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó