3.10.2013 | 09:22
Ekki skynsamlegt að draga úr stuðningi við rannsóknir
Á nýjum fjárlögum er framlag til rannsóknarsjóðs Rannís minnkað um 200 milljónir, auk þess sem aðrir sjóðir á vegum Rannís eru skertir.
Grunnrannsóknir eru nær eingöngu reknar fyrir opinbert fé*. Þær eru grunnurinn sem hagnýtar rannsóknir byggja á. Einnig eru þær mikilvægar til að þjálfa fólk til vísindalegra vinnubragða, sem nýtist við hagnýtingu og betrumbætur á flestum sviðum.
Vísindamenn skrifa umsóknir, senda til Rannís, sem fær fagmenn til að meta þær og raða eftir gæðum. Um 29.9% umsókna hlutu brautargengi árið 2013 (úthlutað var 317 milljónum), en aðeins 20.2% árið 2012 (úthlutað var 233 milljónum).
Hlutfall styrktra umsókna er frekar lágt, og upphæðirnar ekki háar á landsmælikvarða.
Rannsóknasjóður Rannís styrkir verkefni til 3 ára í senn. 2/3 sjóðsins eru því bundnir á hverju ári, í verkefni sem samþykkt voru árin tvö á undan.
Það þýðir að mikil skerðing á sjóðnum, getur þýtt að fá eða engin verkefni verða styrkt í janúar 2014.
Ef maður étur útsæðið og brennir smíðaviðinn, er ekki von á góðu.
*Einkaðillar vilja ekki fjárfesta í slíkum rannsóknum, nema helst á sjúkdómum sem þeir eða nærstaddir eru að drepast úr.
![]() |
Mesti vöxtur sjávarklasans er í líftækni og fullvinnslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.10.2013 | 10:44
Vísindi loftslags og umræðan
Nú um helgina veðrur málþing um Loftslagsvísindin og loftslagsumræðan. Til þingsins var boðið nokkrum þekktustu sérfræðingum á sviði loftslagsrannsókna. Úr tilkynningu:
------------------Málþing með nokkrum þekktustu sérfræðingum samtímans á sviði loftslagsrannsókna, Stefan Rahmstorf, Michael Mann, Kari Norgaard og Peter Sinclair. Laugardaginn 5. október í Háskólatorgi 105 (13.0017.00). Málþingið er öllum opið og aðgangur ókeypis.
Guðni Elísson, forseti Íslensku- og menningardeildar, setur þingið og kynnir þátttakendur. Halldór Björnsson, verkefnisstjóri loftslagsrannsókna hjá Veðurstofu Íslands, stýrir umræðum. Ráðstefnan er haldin í tengslum við námskeiðin Menning og andóf (MFR702F 2013), Loftslagsbreytingar orðræða og aðgerðastefna (MFR008F 2013) og Heimildamyndir (KVI106G 2013) sem Guðni Elísson kennir.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 10:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
30.9.2013 | 10:34
Sprengjugengið, vel að hvellinum komið
Vísindi og fræði | Breytt 2.10.2013 kl. 16:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.9.2013 | 09:44
Vísindavaka
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó