16.9.2013 | 10:46
Ákall vegna Náttúruminjasafns Íslands
Stjórnir nokkurra félaga og fræðisamtök á sviði náttúrufræða og náttúruverndar, til Mennta- og menningarmálaráðherra Illuga Gunnarssonar, vegna Náttúruminjasafni í Perlunni. Bréfið er hér prentað í heild sinni.
Undirrituð samtök hvetja menntamálaráðherra eindregið til að þess að sýna djörfung og þor við uppbyggingu Náttúruminjasafns Íslands í Perlunni. Náttúruminjasafn Íslands er lögum samkvæmt eitt þriggja höfuðsafna þjóðarinnar og á að gegna lykilhlutverki í kynningu og fræðslu um náttúru Íslands. Safnið hefur verið á hrakhólum og búið við óviðunandi aðstæður svo áratugum skiptir. Náttúruminjasafn í Perlunni veitir ótal tækifæri og mat fagaðila, m.a.
Framkvæmdasýslu ríkisins, bendir til að aðgangseyrir muni standa undir leiguverðinu (80 milljónir á ári fyrir 3.200 m2, og gott betur). Jafnframt yrði safnið mikilvægur þáttur í uppbyggingu ferðaþjónustunnar. Veglegt höfuðsafn í náttúrufræðum er stolt hverrar velstæðrar þjóðar og dýrmætur fróðleiksbrunnur fyrir þegna og gesti viðkomandi lands. Í ljósi þess að Íslendingar byggja atvinnu sína og líf á náttúru landsins í mjög ríkum mæli, auk þess sem langflestir erlendir ferðamenn sækja landið heim vegna náttúrunnar, skiptir öllu máli að bjóða upp á vandað höfuðsafn um náttúru landsins sem vel er í sveit sett og sómi er að.
Samtökin minna á að Náttúruminjasafn Íslands hefur mikla þýðingu fyrir upplýsingamiðlun og fræðslu gagnvart öllum skólastigum landsins og almenningi.
Slík fræðsla er óformleg í þeim skilningi að hún er ekki beint innan skólakerfisins og í því liggur styrkur hennar.
Félag náttúrufræðikennara á grunnskólastigi, Sigurður Halldór Jesson
Félag raungreinakennara Valgerður Þ.E. Guðjónsdóttir
Fuglavernd, Jóhann Óli Hilmarsson
Hið íslenska náttúrufræðifélag, Árni Hjartarson
Jarðfræðafélag Íslands, Sigurlaug María Hreinsdóttir
Landvernd, Guðmundur Hörður Guðmundsson
Líffræðifélag Íslands, Arnar Pálsson
Náttúruverndarsamtök Íslands, Árni Finnsson
Samlíf Samtök líffræðikennara, Ester Ýr Jónsdóttir
Aukreitis:
Grein eftir forstöðumann Náttúruminjasafnsins, Hilmar Malmquist, birtist í fréttablaði dagsins í dag (16. september 2013). Náttúruminjasafn Íslands gæluverkefni eða þjóðþrifamál?
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 10:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.9.2013 | 12:53
Óperur bæta líðan eftir hjartaígræðslu
Að minnsta kosti ef þú ert mús. Japanskir vísindamenn framkvæmdu hjartaígræðslur á músum, og könnuðu óperur hefðu áhrif á batahorfur músanna. Og viti menn, mýsnar sem hlýddu á óperurnar jöfnuðu sig betur en þær sem fengu engar óperur.
Ig nóbelsverðlaunin snúast um að verðlauna snjallar rannsóknir, eða amk rannsóknir sem hafa spaugilegan vinkil.
Það er auðvelt að afneita Ig nóbelnum sem kjánaskap, og jafnvel gagnrýna að þau séu í raun vísindasirkus. En aðstandendur gæta þess að velja ekki bara fyndnar rannsóknir, heldur einnig rannsóknir með forvitnilega ef ekki hagnýta vinkla.
Í samfélagi nútímans er reyndar kappnóg af skemmtan, og sumir segja að minni áhugi fólks á þjóðfélagsmálum, menningu og vísindum sé að hluta til vegna þess að afþreyingar gleypi allan tíma. Susan Jacoby segir amk í The age of American unreason, að helsta afurð bítlatímans sé einmitt minnislaus poppkúltúr sem drekki upplýstri umræðu.
Ef til vill er eina leiðin til miðla mikilvægi vísinda að klæða vísindamennina í búninga og láta þá koma fram í risastórri grínóperu. Einmitt eins og Ig Nobelinn var í gær. Í tilefni af rannsóknarinnar á hjartaígræðslum, var verðlaunaathöfn Ig Nóbelsins skipulögð sem ópera í 4 þáttum, með stuttum innslögum þar sem sigurvegararnir tóku við verðlaunum.
Hægt er að horfa á sirkusinn á vef Ig Nobel - Improbable research.
Mynd af vef The Guardian.
Ítarefni:
2013 Ig® Nobel Prize Ceremony & Lectures - Improbable Research
Alok Jha The Guardian 13. sept. 2013. Ig Nobel prize for discovery that opera is good for a mouse's heart
Fréttaskot frá Associated Press http://www.youtube.com/watch?v=QcqVVbjiXOE
Masateru Uchiyama, Xiangyuan Jin, Qi Zhang, Toshihito Hirai, Atsushi Amano, Hisashi Bashuda and Masanori Niimi Auditory stimulation of opera music induced prolongation of murine cardiac allograft survival and maintained generation of regulatory CD4+CD25+ cells Journal of Cardiothoracic Surgery, vol. 7, no. 26, epub. March 23, 2012.
![]() |
Bjór rannsókn hlýtur Ig Nóbelinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 12:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.9.2013 | 14:49
Ráðstefna um Líffræðirannsóknir á Íslandi - skráning hefst
10.9.2013 | 13:59
Furðuleg seinkun friðunar
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó