27.8.2013 | 08:42
Svartamarkaður með sæði
Eins og fram kom í gær, stendur nú yfir málþing um staðgöngumæðrun í Þjóðminjasafninu. Málþingið er skipulagt af Norrænu lífsiðanefndinni, og fjallað er um málið frá mörgum hornum.
Rúv fjallaði um málið 26. ágúst 2013.
Brýnt er að þjóðir heims komi sér saman um löggjöf um staðgöngumæðrun. Þetta kom fram í máli siðfræðinga sem töluðu á ráðstefnu um málefnið í Reykjavík í dag.
Hópur fræðimanna vinnur nú að því að semja ný lög sem leyfa staðgöngumæðrun hér á landi. Grár og svartur markaður með tæknifrjóvganir fer ört vaxandi í heiminum. Norræna lífsiðfræðinefndin blés til ráðstefnunnar. Eftirspurn eftir staðgöngumæðrun fer ört vaxandi í hinum vestræna heimi. Fleiri og fleiri glíma við ófrjósemi og fleiri og fleiri slá barneignum á frest og reynast svo of gamlir þegar til kastanna kemur. Þá leita samkynhneigðir í auknum mæli eftir þjónustunni.
Forstjóri Danska sæðisbankans, Ole Schou er markaðsmaður að mennt og lítur á þetta sem spurningu um eftirspurn og framboð. Eftirspurnin sé næg, og ef hömlur eru settar á framboðið, muni það leiða til svartamarkaðar.
Ole Schou er bankastjóri danska sæðisbankans sem er sá stærsti í heimi. 35 þúsund börn eru getin með sæði úr bankanum í yfir 70 löndum. 90% af sæðinu er til útflutnings. Bankastjórinn segir framboð og eftirspurn eftir sæði það mikla að nauðsynlegt sé að veita þjónustuna svo hún leiti ekki undir yfirborðið. Of ströng löggjöf geti slegið á framboðið en ekki á eftirspurnina.
Meira um það síðar.
Ítarefni:
Rúv 26. ágúst 2013. Svartur getnaðarmarkaður fer vaxandi
26.8.2013 | 13:34
Siðferðlileg álitamál um staðgöngumæðrun
Nú stendur yfir fundur í Þjóðminjasafninu um staðgöngumæðrun í alþjóðlegu samhengi.
Fjallað er um siðferðileg og lögfræðileg álitamál sem tengjast staðgöngumæðrun, sæðis og eggjagjöfum. Meðal þeirra spurninga sem velt er upp er:
Hafa börn rétt á að vita um sín erfðafræðilegu foreldri?
Á barn fætt með sæðisgjöf, rétt á að vita hver pabbinn er?
Hver er réttur staðgöngumóður?
Hver er réttur eggjagjafa(móður) og sæðisgjafa(föður)?
Hver er réttur barns sem fætt er af staðgöngumóður?
Á það barn rétt á að þekkja sína staðgöngumóður?
Á dagskrá eru mörg mjög athyglisverð erindi.
Reproductive Technology and Surrogacy a Global Perspective, Reykjavik 25-27 August
Í morgun bar Salla Silvola lögfræðingur í Finnska dómsmálaráðaneytinu, saman norræna löggjöf um staðgöngumæðrun.
Helga Sól Ólafsdóttir, félagsráðgjafi og lektor við HÍ fjallaði um ráðgjöf og sjónarhorn þeirra sem leitast eftir tæknifrjóvgun og e.t.v. staðgöngumæðrun vegna ófrjósemi.
Ole Schou, forstjóri stærsta sæðisbanka veraldar (Cryos International), fjallaði um þeirra sögu, reynslu og siðferðileg álitamál.
Síðasta erindi morgunsins flutti Guido Pennings, siðfræðiprófessor við Ghent háskóla. Hann ræddi um samræmingu löggjafar, og hvatti í raun til þess að lönd Evrópu fylgdu sinni eigin stefnu, og gerðu þannig nokkurskonar lögfræðilegar tilraunir á minni skala, sem aðrar þjóðir gætu þá lært af.
Fundurinn er skipulagður af Norrænu lífsiðanefndinni, sem starfar í umboði norræna ráðherraráðsins.
22.8.2013 | 10:46
Sjálfstæðir fjölmiðlar eru nauðsynlegir
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 13:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.8.2013 | 10:25
Listaverk í undirdjúpunum
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó