14.2.2012 | 16:18
Hræðilegt ástand fjölmiðla í íslenskri sæborg
Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur hefur kannað umfjöllun íslenskra prentmiðla um líftækni og skyld efni. Hún gerði þessu skil í kafla í bókinni Sæborgin: Stefnumót líkama og tækni í ævintýri og veruleika (2011). Bókin er hreinasta gersemi, þar sem Úlfhildur samþættir lítækni, bókmennta og poppkúltúr og veltir um leið upp siðferðilegum og praktískum spurningum um líkama og tækni.
Úlfhildur hélt erindi fyrir líffræðina í lok síðustu viku (Gengur skrímslið laust? Líftækni í ljósi bókmennta) og kom þá örlítið inn á það hvernig íslenskir prentmiðlar fjalla um líftækni. Hún viðhafði stór orð, sagði að umfjöllunin væri hörmung. Ályktun hennar er rækilega studd dæmum sem finna má í bókinni (og fleiri hundruð síðum sem fjarlægðar voru af ritstjóra). En hafi umfjöllun fjölmiðla verið döpur þá var orðaræðan sem greina má í skjölum (ræðum) alþingis um líftækni fyrir neðan allar hellur.
Guðrún Elsa (á druslubækur og doðrantar) segir í pistli:Tveir síðustu kaflar bókarinnar eru um fræðilega og almenna umfjöllun um sæborgina á Íslandi, en þar færist áherslan yfir á líftækni. Síðasti kaflinn er sérstaklega skemmtilegur, en þar einbeitir Úlfhildur sér að umfjöllun um líftækni og tæknimenningu í íslenskum dagblöðum. Hún beitir orðræðugreiningu til að skoða hvernig fjallað er um þessi efni og veltir því fyrir sér hvort umfjöllunin sé upplýst/upplýsandi og hvernig skáldskapur móti hugmyndir okkar um þessi fyrirbæri. Raunar er fjallað töluvert um það fyrr í bókinni hvernig skáldskapur og raunveruleiki eiga í samræðu þegar kemur að sæborginni og sæborgskum fyrirbærum, en hér fáum við nokkur áhugaverð konkret dæmi. Í kaflanum ber hún íslensk blaðaskrif saman við umfjöllun um líftækni í The Guardian (mjög vandræðalegur samanburður), auk þess sem hún skoðar umræður tengdar líftækni sem farið hafa fram á Alþingi undanfarin ár (annarsvegar um gagnagrunn Íslenskrar erfðagreiningar, hins vegar um rannsóknir á stofnfrumum úr fósturvísum). Þennan kafla ættu áhugamenn um fjölmiðlun endilega að lesa, hann er fyndinn og svo afhjúpar hann líka hvað íslenskur fréttaflutningur getur verið hrikalega yfirborðskenndur. [feitletrun AP]
Á þessu bloggi höfum við nokkuð oft farið í þann leik að leiðrétta einstakar fréttir, benda á mistök og mistúlkanir. Hér höfum við safnað góðum slatta af dæmum um skelfilega einfaldar þýðingar, misvísandi fyrirsagnir og hráar eftirprentanir fréttatilkynninga, á mbl.is, visir.is og fleiri miðlum.
Vandamálið birtist á nokkra vegu.
Grípandi fyrirsagnir ofar efni.
Deila tveggja aðilla, hann segir : hún segir, þar sem fréttamaður hefur hvorki getu né metnað til að greina rétt frá röngu.
Sama fréttin birtist tvisvar á sama miðli, undir mismunandi titlum.
Ekkert samhengi er milli frétta um sama efni.
Nýjungar eru ekki settar í stærra samhengi.
13.2.2012 | 16:20
Vibrio cholerae í alþjóðlegu og íslensku samhengi - FRESTAÐ
Erindinu hefur verið frestað af óviðráðanlegum ástæðum. Það verður flutt í mars eða apríl.
Eva Benediktsdóttir dósent við Líf og umhverfisvísindadeild HÍ mun fjalla um Vibrio cholerae í alþjóðlegu og íslensku samhengi föstudaginn 17. febrúar 2012 (kl. 12:30-13:10).
Vibrio cholerae er baktería sem veldur kóleru, viss afbrigði valda slæmum faröldrum en önnur hafa valdið stöku tilfellum af magakveisum, eyrnabólgum o. fl. einkennum. Bakterían finnst í volgum hálfsöltum sjó eða vötnum á og í ýmsum lífverum. Menn greinir á hvort kólerusýkingar eigi uppruna sinn í bakteríum sem eðlilega lifa í sjónum, eða hvort bakterían dreifist um heiminn með saurmengun. Á Íslandi hefur kólerubakterían fundist víða við strendur þar sem jarðhitavatn streymir í flæðarmálið. Niðurstöður athugana á V. cholerae á Íslandi verða sýndar og ræddar. Þeir stofnar sem hér finnast framleiða ekki aðaleitur bakteríunnar, en marga aðra sýkiþætti. Þeir eru ekki af einum klón eða stofni, sem bendir til þess að bakterían sé hér eðlilegur hluti náttúrunnar og hafi verið hér um aldir. Fundur V. cholerae hér, þar sem kólera hefur aldrei greinst í mönnum, rennir stoðum undir það að bakterían lifi eðlilega í sjónum og saurmengun af mannavöldum hafi ekkert að gera með dreifingu hennar.
Föstudagsfyrirlestrar Líffræðistofnunar eru haldnir í stofu 130 í Öskju, náttúrufræðahúsi HÍ og eru öllum opnir. Erindin eru flutt á íslensku, nema annað sé tekið fram.
Dagskrá vorsins má nálgast á vef Líf og umhverfisvísindadeildar HÍ.
Vísindi og fræði | Breytt 16.2.2012 kl. 12:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.2.2012 | 12:05
Umhverfi, erfðir og andlegir eiginleikar
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 12:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
7.2.2012 | 10:12
Gengur skrímslið laust? Líftækni í ljósi bókmennta
Vísindi og fræði | Breytt 15.2.2012 kl. 15:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó