18.4.2010 | 16:19
Fréttir, fréttamenn og ritskoðun
Opið samfélag byggir á góðri fréttamennsku, þar sem bent er á það sem aflaga fer, t.d. spillingu í stjórnsýslu, ofríki fyrirtækja, eða óeðlilegum hagsmunatengslum.
Það er mikilvægt að blaðamenn og almenningur geti kynnt sér mál, sett þau í samhengi og fylgt þeim eftir. Annars sleppa peningagráðugu ránfuglarnir úr snörunni. Gagnrýni á einstaklinga, fyrirtæki og félög sem halda fram bulli er skylda þegnanna og sérstaklega fréttamiðla.
Því miður erum við illa búin hérlendis. Fréttablöðin eru ekki með sérstaka vísindafréttamenn, og virðast til í að prenta hvaða fréttatilkynningu sem er um hnykklækningar, olíumeðferðir, maðkasúpuseyði og detox (t.d.MMS steypuna). Það er meðvirkni.
Erlendis er sama barátta háð. Undanfarið ár hefur blaðamaðurinn Simon Singh staðið í málaferlum við bresku hnykklækningasamtökin sem voru ekki sátt við gagnrýni hans á auglýsingar samtakanna. Samtökin stefndu honum fyrir meiðyrði - en töpuðu málinu. Bendi á pistil Kristins Theodórssonar um þetta efni: Sigur vísindanna yfir kukli og ranghugmyndum og frétt the Telegraph Simon Singh wins key battle in alternative medicine libel case.
Þetta er ekki erlent vandamál, heldur fyrirbæri sem stuðlaði einng að hruni okkar. Það var þöggun í samfélaginu, og Kristinn G. Arngrímsson fyrrverandi blaðamaður tekur undir það: Morgunblaðið tók þátt í þögguninni.
högun tilrauna og smáskammta"lækningar"
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 17:17 | Facebook
Nýjustu færslur
- Eru virkilega til hættuleg afbrigði veirunnar sem veldur COVI...
- Grunnrannsóknir eina aðferðin til að skapa nýja þekkingu og e...
- Lífvísindasetur skorar á stjórnvöld að efla hlut Rannsóknasjó...
- Eru bleikjuafbrigði í Þingvallavatni að þróast í nýjar tegundir?
- Hröð þróun við rætur himnaríkis
- Leyndardómur Rauðahafsins
- Loftslagsbreytingar og leiðtogar: Ferðasaga frá Suðurskautsla...
- Genatjáning í snemmþroskun og erfðabreytileiki bleikjuafbrig...
- Fjöldi og dreifing dílaskarfa á Íslandi
- Staða þekkingar á fiskeldi í sjó
Athugasemdir
Ég er stolt fórnarlamb þöggunar :)
DoctorE (IP-tala skráð) 19.4.2010 kl. 11:27
Frábær lína.
Þú ættir að búa til stuttermaboli og selja.
Ég myndi kaupa einn á 1789 kr.
Arnar Pálsson, 19.4.2010 kl. 12:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.